Innlent

Fundaði með utanríkisráðherra Kanada

Atli Ísleifsson skrifar
John Baird tók við embætti utanríkisráðherra Kanada árið 2011.
John Baird tók við embætti utanríkisráðherra Kanada árið 2011. Vísir/AFP
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra fundaði nú síðdegis með John Baird, utanríkisráðherra Kanada, en Baird er nú staddur hér á landi í boði utanríkisráðherra.

Í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að ráðherrarnir hafi rætt sögu- og menningarleg tengsl Íslands og Kanada, en um 200 þúsund Kanadamenn af íslenskum uppruna búa nú í Kanada. „Einnig ræddu ráðherrarnir viðskipti og fjárfestingar milli landanna sem fara vaxandi, sem og fjölgun ferðamanna, en nú er flogið beint frá Keflavík til fjögurra áfangastaða í Kanada.

Þá voru sameiginleg hagsmunamál Íslands og Kanada í málefnum norðurslóða til umræðu, en Kanada fer nú um stundir með formennsku í Norðurskautsráðinu. Ráðherrarnir ræddu einnig stöðuna í Írak og Sýrlandi, sem og horfur í öryggismálum í Evrópu, einkum í Úkraínu.“

Utanríkisráðherra Kanada heldur af landi brott á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×