Fullnæging skapar nánd

Fréttablaðið Fastir pennar 29. nóvember 2011 20:00
Sigga Dögg kynlífsfræðingur.
Sigga Dögg kynlífsfræðingur.
Sigga Dögg skrifar:
Hér hafa tvö mál verið mikið í umræðunni, eitt sem fjallar um dýraníð og annað um mann sem fangelsaður var fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur sinni. Ég hef verið að velta því fyrir mér hvað það er sem fær fólk til að haga sér svona.

Er þetta kynbrenglun í líkingu við það að vilja láta niðurlægja sig eða eitthvað allt annað? Hafa kynfræðingar eitthvað rannsakað hegðun sem þessa?

Svar: Hér er um að ræða tvö mjög ólík mál; dýraníð og svo kynferðisbrot gegn barni. Það er því ekki hægt að tala um þetta sem einsleitan hóp af gerendum. Ég get ekki gert þessu ítarleg skil hér en kynfræðingar hafa einbeitt sér frekar að rannsóknum á seinna brotinu. Það má útskýra m.a. með því að réttindi dýra eru mismikil eftir löndum og því áherslan á rannsóknir á dýraníði því oft ekki talin þörf.

Dýraníð hefur þó ögn verið kannað og er hvatinn við dýraníð annar en hjá barnaníðingum. Þá skiptast dýraníðingar í tvo hópa, þá sem segjast hneigjast til dýra og eiga í sambandi við þau, og þá sem telja sig einungis stunda kynlíf með dýrum. Að mér vitandi hafa fræðin ekki tengt þessi mál við niðurlægingu enda er það annar angi af kynlífi sem byggir ekki á lögbroti heldur samþykki þess sem „niðurlægir“ og þess sem er niðurlægður og er þetta ekki talin sem kynbrenglun. Þetta eru því töluvert flóknari mál en ég vona ég hafi svarað þér að einhverju leyti.



Oprah leysir málin

Ég var að horfa á Oprah Winfrey og þar voru hjón á barmi skilnaðar en ráðgjafi þáttarins fékk þau til að prófa að stunda kynlíf einu sinni á dag í heila viku og tala svo við sig aftur.

Þau gerðu það og viti menn, þau hættu við að skilja og voru hamingjusamari en nokkru sinni fyrr. Því spyr ég, er til einhver mælikvarði fyrir það hversu oft pör/hjón eiga að sofa saman í viku, hvað sé ráðlegt eða telst „eðlilegt“?

Svar: Hin sígilda spurning um meðaltal. Það er ekki til nein ein töfratala þar sem skilgreining á kynlífi er einstaklingsbundin og ekki bara bundin við samfarir. Svo er kynlöngun einstaklinga breytileg. Hvert og eitt par verður því að finna sína tölu sem báðir eru sáttir við.

Þetta er ekki bara spurning um að láta fólk stunda kynlíf daglega og að þar með leysist þeirra vandamál, frekar hvað gerist milli pars þegar það stundar kynlíf reglulega. Þetta er spurning um að fá oftar fullnægingu, saman og í sitthvoru lagi, og það skapar aukna nánd. Þegar báðir aðilar eru fullnægðir þá eru þeir hamingjusamari og sambandið gengur betur. Rifrildi verða færri og skilningur meiri. Þetta gæti verið ágætis æfing fyrir pör sem eru pirruð.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Fullnæging skapar nánd