Enski boltinn

Fulham vann stórsigur en Ragnar var ekki með

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Einar í baráttunni í dag.
Aron Einar í baráttunni í dag. Vísir/Getty
Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Fulham í dag þegar liðið vann öruggan 5-0 sigur á Reading í dag.

Ragnar hefur verið fastamaður í liði Fulham en var svo ekki á skýrslu í dag. Chris Martin skoraði tvö mörk fyrir Fulham en Reading hafði unnið síðustu fimm leiki sína.

Hörður Björgvin Magnússon spilaði allan leikinn fyrir Bristol City sem vann Ipswich, 2-0.

Þá gerðu Cardiff og Brighton markalaust jafntefli en Aron Einar Gunnarsson spilaði allan leikinn fyrir Cardiff og fékk gult spjald í leiknum.

Fulham er í tíunda sæti deildarinnar, Bristol City í ellefta og Cardiff í 22. og þriðja neðsta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×