Innlent

Frumvarp um opinber innkaup lent í mótbyr

Sveinn Arnarsson skrifar
Leggja á frumvarp um opinber innkaup fram nú á vorþingi.
Leggja á frumvarp um opinber innkaup fram nú á vorþingi. vísir/ernir
Félag atvinnurekenda, Viðskiptaráð Íslands og Samkeppniseftirlitið leggjast öll harðlega gegn tillögu um að innlendum kaupendum verði heimilt að nota erlend stjórnvöld til að hafa milligöngu um kaup á vöru og þjónustu án þess að sérstakt samkeppnismat fari fram hér á landi.

Þetta kemur fram í umsögnum til fjármálaráðuneytisins vegna frumvarps um breytingu á lögum um opinber innkaup.

„Viðskiptaráð gerir alvarlegar athugasemdir við afnám svokallaðs samkeppnismats við framkvæmd útboða í gegnum miðlægar innkaupastofnanir í öðrum ríkjum,“ segir í umsögn Viðskiptaráðs. Brýnt sé að halda inni ákvæði um samkeppnismat sem væri rýnt af Samkeppniseftirlitinu hverju sinni.

Ólafur Stephensen
„Telur ráðið að samkeppnismat sé forsenda þess að innkaupastefna hins opinbera taki tillit til heildaráhrifa útboðs,“ segir Viðskiptaráð.

Samkeppniseftirlitið segir lögin í heild fela í sér mjög jákvæð skref í átt að virkari samkeppni en geldur varhug við því að innlent samkeppnismat verði fellt úr nýjum lögum.

Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra sagði við Fréttablaðið 18. janúar að það væri mikilvægt að breyta lögunum þannig að sameiginleg útboð Norðurlandanna gætu farið fram.

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins
Landspítalinn hefur bent á að ríkið gæti sparað mikið ef hægt væri að taka þátt í lyfjaútboði með öðrum þjóðum. „En að svo stöddu hamla lög um opinber innkaup og lagaumhverfi í nágrannalöndunum því að svo geti orðið,“ segir Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Landspítalans.

Félag atvinnurekenda hafnar því að ákvæðið um innlent samkeppnismat hamli þátttöku í útboðum með öðrum þjóðum. Ríkisstofnanir hafi undanfarin ár tekið þátt í útboðum með erlendum aðilum þrátt fyrir ákvæðið. Tryggja þurfi innlent samkeppnismat til að tryggja að Samkeppniseftirlitið geti skoðað hvaða afleiðingar útboð með öðrum þjóðum hafi fyrir innlenda samkeppni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×