Innlent

Frjáls ferða sinna hvort sem hann greiðir sektina eða ekki

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Evaristti litaði Strokk bleikan í gær.
Evaristti litaði Strokk bleikan í gær. Mynd/Marco Evaristti
Marco Evaristti, listamaðurinn sem í gær hellti rauðu litarefni út í hverinn Strokk og var í dag sektaður um 100 þúsund krónur, er frjáls ferða sinna og heimil brottför af landinu, hvort sem hann greiðir sektina eður ei. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Í samtali við Vísi fyrr í kvöld sagðist Evaristti ekki ætla að gangast við sektinni heldur fara með málið fyrir dómstóla. Hann var yfirheyrður í dag vegna gruns um að hafa brotið gegn ákvæðum náttúruverndarlaga nr. 44/1999 og viðurkenndi hann að hafa hellt litarefni út í hverinn.

Evaristti tjáði lögreglu að um listagjörning hafi verið að ræða. Þá sagðist hann hafa gætt þess sérstaklega að ekki hlytist varanlegt tjón af verknaðinum og bendir skoðun lögreglu á vettvangi til þess að þetta sé að minnsta kosti einhverju leyti rétt. Lítil sem engin ummerki sjást á eða við hverinn.

Evaristti í Haukadal í gær.Mynd/Marco Evaristti
„Að lokinni skýrslutöku var manninum boðið að ljúka málinu með því að samþykkja sektargerð þar sem honum er gert að greiða 100.000.- króna sekt en til vara að sæta 8 daga fangelsi greiði hann ekki sektina.

Hann óskaði eftir því að fá að ráðfæra sig við lögmann vegna þessa en kvaðst myndi gera upp hug sinn áður en hann færi af landinu um hvort hann vildi ljúka málinu með þessum hætti eða ekki.

Kjósi hann að ljúka málinu ekki með þessum hætti mun ákæruvaldið taka ákvörðun um útgáfu ákæru á grundvelli málsgagna og fær málið þá sína meðferð fyrir íslenskum dómstólum.

Maðurinn er frjáls ferða sinna og heimil brottför af landinu hvora leiðina sem hann velur. Hann hefur verið samstarfsfús við lögreglu og lagt sig fram um að upplýsa alla þætti málsins,“ segir í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi.

Fimmtugur karlmaður, danskur ríkisborgari, var í dag yfirheyrður af lögreglunni á Suðurlandi grunaður um að hafa brotið...

Posted by Lögreglan á Suðurlandi on Saturday, 25 April 2015

Tengdar fréttir

Strokkur gaus rauðu - Myndband

Rauðu litarefni var hellt út í Strokk í morgun sem varð til þess að hann gaus rauðu. Talsmaður landeigendafélags Geysis segir að um vanvirðingu við náttúruna sé að ræða og vill að gripið verði til frekari ráðstafana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×