Portúgalinn Andre Villas-Boas, stjóri Spurs, er búinn að finna sér aðstoðarmann en hann hefur ráðið Þjóðverjann Steffen Freund sem sinn aðstoðarmann.
Freund er vel kunnugur á White Hart Lane eftir að hafa spila með Tottenham frá 1998 til 2003.
Hann var í talsverðum metum hjá stuðningsmönnum félagsins sem eflaust fagna endurkomu hans.
Verður áhugavert að fylgjast með samstarfi þeirra á næsta tímabili en talsverð pressa er á Villas-Boas að standa sig, ekki síst í ljósi þess hversu illa gekk hjá honum með Chelsea.