Fréttaviðtal: Greina orsakir til að læra af þeim

Fréttablaðið Viðskipti innlent 08. febrúar 2012 11:00
Hagfræðiprófessorinn Jesper Rangvid fer fyrir rannsóknarnefnd um orsakir fjármálakreppunnar í Danmörku. Hann segir mikilvægt að skera úr um að hvaða leyti megi rekja orsakir kreppunnar til innlendra þátta. Fréttablaðið/GVA
Hagfræðiprófessorinn Jesper Rangvid fer fyrir rannsóknarnefnd um orsakir fjármálakreppunnar í Danmörku. Hann segir mikilvægt að skera úr um að hvaða leyti megi rekja orsakir kreppunnar til innlendra þátta. Fréttablaðið/GVA
Danski hagfræðingurinn Jesper Rangvid var staddur hér á landi nýverið þar sem hann var gestaprófessor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Rangvid, sem er prófessor við Viðskiptaháskóla Kaupmannahafnar, var nýverið skipaður formaður yfir rannsóknarnefnd sem mun freista þess að skýra hvort, og þá með hvaða hætti, innlendir áhrifaþættir höfðu áhrif á yfirstandandi erfiðleika fjámálalífsins þar í landi.
Þó að ástandið í Danmörku sé langt í frá eins alvarlegt eða víðtækt eins og verið hefur hér á Íslandi, hafa fjármálastofnanir átt í miklum erfiðleikum. Eins og stendur hafa ellefu bankar orðið gjaldþrota frá hruninu haustið 2008.

Rannsóknarnefndin nýskipaða hefur það yfirlýsta hlutverk að greina innlenda og erlenda orsakaþætti í dönsku fjármálakreppunni, hvort ráðgjöf bankastofnana til viðskiptavina sinna hafi haft magnandi áhrif á erfiðleikana sem lagst hafi á einstaklinga og fyrirtæki, og loks leggja til aðgerðir til þess að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig. Nefndin á að skila niðurstöðum sínum áður en árið er á enda liðið.
Hvernig er ástandið í dönsku efnahagslífi nú, rúmum þremur árum eftir að alþjóðafjármálakreppan skall á?

„Það fer að miklu leyti eftir því hvað miðað er við. Í samanburði við Svíþjóð og Noreg, sem við Danir berum okkur jafnan saman við, erum við sannarlega verr á vegi stödd. Við erum enda að kljást við atvinnuleysi, lítinn hagvöxt, verðfall á húsnæðismarkaði og hallarekstur í ríkisfjármálum.

Í samanburði við löndin sunnar í álfunni, til dæmis Spán, Ítalíu, Frakkland, Belgíu og Bretland, erum við hins vegar í mun betri stöðu. Ástandið er vissulega ekki frábært, en við erum heldur ekki að horfa upp á neinar hörmungar í fyrirsjáanlegri framtíð."

Hver eru þá mest aðkallandi vandamálin?

„Fyrst og fremst verður að skapa vöxt, en það er tvennt sem stendur því fyrir þrifum. Í fyrsta lagi eru dönsk heimili afar skuldsett, en það er afleiðing húsnæðisbólunnar, sem var alvarlegri hjá okkur en til dæmis í Noregi. Fasteignaverð hefur fallið á meðan skuldirnar hækka og nú er svo komið að meðalskuldir heimilanna í Danmörku eru þær hæstu í öllum heimi, að mér skilst, þó að danska ríkið sé ekki mjög skuldsett. Skuldir heimilanna verða hins vegar til þess að fólk hefur minna á milli handanna og það kemur niður á neyslu almennings.

Þar fyrir utan erum við enn að kljást við það að atvinnulífið er ekki nógu samkeppnisfært miðað við önnur lönd, en það hafði að vísu þegar gerst fyrir kreppu með stórhækkuðum launum á danska vinnumarkaðnum. Af þeim sökum hugsa fyrirtæki sig tvisvar um þegar þau velta því fyrir sér hvort eigi að hefja starfsemi í Danmörku frekar en í Póllandi eða Þýskalandi, til dæmis, þar sem kostnaðurinn er þriðjungi lægri."

Hvernig mun rannsóknarnefndin starfa og hvað verður gert við niðurstöður hennar?
„Við verðum sex sjálfstæðir fulltrúar í nefndinni, fjórir fræðimenn, fyrrum seðlabankastjóri og fyrrum bankastjóri Nordea-bankans. Svo verða fimm fulltrúar frá ráðuneytunum, fjármálaeftirlitinu og seðlabankanum, auk aðstoðarfólks.

Við munum ekki vera með opinberar yfirheyrslur eins og sums staðar hefur tíðkast, heldur munum við aðallega greina gögn sem við öflum okkur. Við munum svo komast að ákveðinni niðurstöðu og leggja til leiðir til úrbóta, sem stjórnmálamenn munu svo taka afstöðu til."

Er eitthvað sérstakt sem bendir til þess að innlendir þættir hafi haft áhrif á stöðuna?
„Sú staðreynd að á annan tug danskra banka hefur orðið gjaldþrota á síðustu árum á meðan enginn banki í Noregi eða Svíþjóð hefur orðið gjaldþrota, gefur ýmislegt í skyn. Mest liggur þó á því að fá úr því skorið hvort eitthvað sem gert var innanlands hafi gert ástandið verra en ella. Ef svo reynist munum við í framtíðinni geta hagað okkar málum þannig að við getum komið í veg fyrir að sagan endurtaki sig."

Stendur til að nota niðurstöður rannsóknarinnar sem grundvöll til saksóknar ef grunur leikur á að lögbrot hafi verið framin? „Ég er ekki viss um það. Í rannsókninni sem var gerð á Íslandi var ýmsum steinum velt og margt kom í ljós. þar á meðal upplýsingar sem hægt var að nota sem sönnunargögn til að rannsaka glæpamál. Í Danmörku hefur hins vegar hvert gjaldþrot banka og gjörðir stjórnenda þeirra þegar verið rannsakað. Okkar niðurstöðum og tillögum um úrbætur verður því frekar beint til stjórnmálastéttarinnar en ákæruvalds eða dómstóla."

Íslenska rannsóknarnefndin hafði mjög víðtækt hlutverk. Verður ykkar rannsókn eins umfangsmikil?

„Já, ég held það. Við förum kannski ekki svo náið ofan í hvern einstakan banka eins og gert var á Íslandi, en við viljum skoða umhverfi og bakgrunn kreppunnar mjög ítarlega og þá spilar allt inni í, þar á meðal gerðir stjórnmálamanna í afreglun markaða og umfjöllun fjölmiðla, til dæmis um fasteignamarkaðinn." Hefur þú kynnt þér íslensku skýrsluna og er viðbúið að ykkar skýrsla muni hafa eins mikil áhrif?

„Ég hef kynnt mér íslensku skýrsluna að því leyti sem ég get og þar var margt mjög vel gert, en ég býst ekki við því að okkar skýrsla verði eins áhrifarík. Það helgast einna helst af því hvað nefndin er stofnuð seint. Síðasta ríkisstjórn vildi ekki þessa rannsókn, þar sem talið var að flest hefði þegar komið fram og meginorsakirnar væri að finna utan Danmerkur. Síðan eru stjórnarskipti síðasta haust og nýja stjórnin ákveður að ráðast í þetta verkefni. Á tímanum sem síðan er liðinn hefur mjög margt komið í ljós og margt áunnist og því er ekki við því að búast að okkar niðurstaða muni hafa eins mikil áhrif."
Hvernig metur þú horfur dansks efnahagslífs næstu árin?

„Eins og ég sagði áður, erum við í vandræðum, en ekki sambærilegum við lönd eins og Spán, Grikkland og Ítalíu. Það verður líklega ekki hraður vöxtur í Danmörku næstu árin, en við munum ekki þurfa að kollvarpa okkar samfélagi eins og hefur þurft víða í Evrópu, þar sem aðhaldsaðgerðir og niðurskurður gengur afar nærri fólki. Markaðirnir hafa trú á stöðugleika í Danmörku sem sést á því að við erum að fá lægri vexti á skuldabréf en Þýskaland, meira að segja. Þess vegna held ég að við getum horft fram á nokkuð stöðugan bata í dönsku efnahagslífi þó að hann verði hægur."

Fleiri fréttir - Viðskipti innlent

Viðskipti innlent 24. maí. 2012 16:14

Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing sýknað af kröfum Smákrana

Hæstiréttur sýknaði í dag fjármögnunarfyrirtækið Lýsingu af kröfum Smákrana vegna fjármögn...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 15:46

OR semur um breytingar á afborgunum lána

Orkuveita Reykjavíkur hefur samið við Dexia Crédit Local bankann um breytingar á afborgunu...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 16:24

Telur að hann hafi átt að fá aðgang að gögnunum

Skiptastjóri þrotabús Milestone segir að öll þau gögn sem afhent voru á grundvelli rannsók...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 14:43

Samherji kærir úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar

Samherji hefur kært úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, frá því í síðustu viku, til Hæstarétta...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 14:05

Rauðar tölur lækkunar í kauphöllinni

Gengi hlutabréfa hjá félögum sem skráð eru á markað í Kauphöll Íslands hafa lækkað nokkuð ...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 12:00

Unnu skýrslu um gjaldþol Milestone - sinna rekstri á sviði rannsókna

Lögreglumennirnir tveir sem hafa verið kærðir til ríkissaksóknara, Guðmundur Haukur Gunnar...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 10:31

Framtíð Lýsingar í húfi

Hæstiréttur kveður í dag upp dóm í máli fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar gegn Smákrönum....  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 10:15

Keldan, Vísir og Kauphöllin setja á fót ávöxtunarleik

Keldan.is, Vísir.is og Kauphöllin hafa gengið frá samstarfssamningi um nýjan ávöxtunarleik...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 09:57

Jónas Fr: RNA hafði rangt fyrir sér

"Hæstiréttur staðfesti nýlega dóm fjölskipaðs héraðsdóms þar sem felld var úr gildi stjórn...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 09:15

Lögreglumennirnir mættu í dómsal í máli Lárusar og Guðmundar

Tveir fyrrum lögreglumenn sem störfuðu fyrir embætti sérstaks saksóknara hafa verið kærðir...  

Meira
Viðskipti innlent 24. maí. 2012 09:11

Verðbólgan 5,4 prósent - lækkar um eitt prósentustig

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í maí er 398,1 stig (maí 1988=100) og lækkaði um 0,...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 21:15

Reykjanesbær búinn að veita samþykki

Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti fjárhagslega endurskipulagingu Eignarhaldsfélagsins Fast...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 20:00

179 umsóknir til að komast í tíu teymi

Alls bárust 179 umsóknir frá yfir 400 einstaklingum um þátttöku í Startup Reykjavík, örfjá...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 19:15

Risafjárfesting í fiskeldi sem nýtir kælivatn virkjunar

Milljarða uppbygging fiskeldisstöðvar er hafin á Reykjanesi, sem nýta mun kælivatn virkjun...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 16:15

Landsbankinn hækkar vexti á óverðtryggðum lánum

Landsbankinn hefur hækkað vexti á óverðtryggðum húsnæðislánum sínum. Óverðtryggðir vextir ...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 15:30

Stoðir vilja 22 milljarða frá Glitni

Stoðir lýstu riftunarkröfu á hendur Glitni banka á árinu 2009 vegna veðréttatilfærslna og ...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 15:29

Tíu sóttu um stöðu forstjóra FME

Tíu manns sóttu um stöðu forstjóra Fjármálaeftirlitsins sem auglýst var laust til umsóknar...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 15:00

Mikil starfsemi hjá málsvörum atvinnulífs

Velta þeirra hagsmunasamtaka sem starfa fyrir íslenskt atvinnulíf er á annan milljarð á ár...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 14:00

Glitnir vill fá fjórtán milljarða frá Stoðum

Slitastjórn Glitnis hefur stefnt Stoðum, sem áður hétu FL Group, til að greiða sér fjórtán...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 10:59

Ljósmyndara vísað á dyr á aðalfundi Bakkavarar

Ágúst Guðmundsson, sem kenndur er við Bakkavör, ákvað upp á sitt einsdæmi að vísa ljósmynd...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 09:36

Hætta mögulega Tchenguiz-rannsókn

Hugsanlegt er að rannsókn efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, ...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 16:30

Fer frá Össuri til Háskóla Íslands

Hilmar Bragi Janusson, framkvæmdastjóri vöruþróunar og rannsóknastarfs hjá Össuri hf., tek...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 09:57

Hagnaður Arion nam 4,5 milljörðum

Hagnaður Arion banka á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 4,5 milljörðum króna eftir skatta en...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 08:00

Ákærður fyrir innherjasvik hjá Glitni

Sérstakur saksóknari hefur ákært Friðfinn Ragnar Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra ...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 21:57

Reginn hf. hagnaðist um 138 milljónir á fyrsta ársfjórðungi

Rekstrartekjur Regins hf. dótturfélags Landsbankans, á fyrsta ársfjórðungi þessa árs námu ...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 17:45

Vonast til að færeyska olíuævintýrið sé að byrja

Dýrasta og viðamesta olíuborun til þessa á landgrunni Færeyja er fyrirhuguð í sumar. Hún g...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 17:23

Gengi Össurar hækkaði skarplega

Gengi hlutabréfa í Össuri hækkað um tæplega 3 prósent í dag, eftir að tilkynnt var um boð ...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 16:09

Bjóðast til að kaupa allt hlutafé í Össuri

William Demant lýsti í dag yfir vilja sínum til þess að kaupa öll hlutabréf í stoðtækjafyr...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 15:15

"Kómískt“ að sjá nefnd snillinga verðleggja fjármuni

Gunnlaugur Jónsson fjárfestir segir nýja nálgun að fjármálakerfum vera lífsnauðsynlega svo...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 13:32

Kjaradeilu sjómanna vísað til sáttasemjara

Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök atvinnulífsins vísuðu í dag kjaraviðræðum útv...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 13:20

ASÍ telur ríkið brjóta gegn jafnræðisreglu

ASÍ telur ríkið brjóta gegn jafnræðisreglu með innheimtu fjársýsluskatts frá lífeyrissjóðu...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 10:37

Sigurjón Sighvatsson vill milljarð frá Glitni

Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi hefur stefnt þrotabúi Glitnis vegna viðskipta v...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 10:24

Launavísitalan lækkar um 0,1 prósent

Launavísitala í apríl 2012 er 431,4 stig og lækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna ...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 10:07

Aflaverðmæti eykst um 28,1 prósent milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,1 milljarði króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2012...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 09:11

Arionbanki hækkar vexti

Arion banki hefur hækkað vexti á óverðtryggðum inn- og útlánum. Vaxtahækkunin kemur í kjöl...  

Meira
Viðskipti innlent 21. maí. 2012 17:14

Gengi Facebook hrynur

Gengi Facebook hefur hrunið í dag, og nemur lækkunin það sem af er degi tæplega 9 prósentu...  

Meira
Viðskipti innlent 21. maí. 2012 16:59

Tölvur og linsur á Suðurskautinu

Höfuðstöðvar Nýherja iðuðu af lífi þegar fréttastofa heimsótti þær á dögunum. Þetta er önn...  

Meira
Viðskipti innlent 21. maí. 2012 15:08

Eignarhaldsfélag Hörpu selur í Marel

Eignarhaldsfélag Hörpu, þar sem Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarm...  

Meira
Viðskipti innlent 21. maí. 2012 09:15

Vísitala byggingarkostnaðar lækkar lítið eitt

Vísitala byggingarkostnaðar lækkaði um 0,1 prósentustig milli mánaða og er hún nú 114,9 st...  

Meira
Viðskipti innlent 20. maí. 2012 20:15

Rannsóknin á Kaupþingsviðskiptum myndi taka mörg ár

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, eða Serious Fraud Office, varaði bræðurna Robert o...  

Meira
Viðskipti innlent 19. maí. 2012 13:27

Mátti greiða 10 milljarða fyrir að láta Kaupþingsmál niður falla

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, bauðst til þess að láta rann...  

Meira
Viðskipti innlent 19. maí. 2012 13:00

Mikill áhugi á Facebook

Það var líflegur dagur í Nasdaq-Kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum í gær þegar viðski...  

Meira
Viðskipti innlent 19. maí. 2012 10:00

Leiguverð fer enn hækkandi

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,6 prósent á milli apríl og maí. Síða...  

Meira
Viðskipti innlent 18. maí. 2012 15:11

Ergo lögmenn verða Íslenska lögfræðistofan

Lögmannsstofan Ergo lögmenn, Turninum Smáratorgi, hefur skipt um nafn og heitir nú Íslensk...  

Meira
Viðskipti innlent 18. maí. 2012 10:55

Verðmætið jókst um 7,8 prósent

Verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða nam rúmum 256 milljörðum króna á síðasta ári ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Allt

Skoðun

Kynfæri keisarans

Kynfæri keisarans

Sif Sigmarsdóttir
Ég elska mat,“ sagði tónlistarmaðurinn Bryan Ferry er ég tók við hann viðtal í tilefni tónleika han...

Skoðun

Hin

Hin "sterka vísindahyggja“

Ólafur Þ. Stephensen
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðustu viku, í framh...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Viðskipti / Viðskipti innlent / Fréttaviðtal: Greina orsakir til að læra af þeim