Innlent

Vigdís furðar sig á forsetanum

Jakob Bjarnar Grétarsson. skrifar
Vigdís Hauksdóttir.
Vigdís Hauksdóttir. Vísir/Friðrik Þór
Vigdís Hauksdóttir fráfarandi formaður fjárlaganefndar furðar sig mjög á því að Guðni Th. Jóhannesson forseti íslenska lýðveldisins hafi tjáð sig í kommentakerfum. Guðni sendi frá sér orðsendingu þar sem hann útskýrði meðal annars nánar orð sem féllu á blaðamannafundi á Bessastöðum í gær er snéru að Móður Theresu og stjórnarmyndunarumboði sem hann fól Bjarna Benediktssyni.

Vigdís telur þetta langt fyrir neðan fyrir neðan virðingu forseta Íslands og fær ekki orða bundist:

„Nei - andskotinn - er ekki forseti Íslands mættur í commentakerfið - halló virðing ...!!!" skrifar Vigdís á Facebookvegg sinn nú rétt í þessu og ekki duga færri en þrjú upphrópunarmerki.

Flokkssystir hennar í Framsóknarflokkunum Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir borgarfulltrúi nálgast málið úr annarri átt: „Það er nú svolítið krúttlegt ef hann verður „virkur í athugasemdum“.“

Uppfært 

Upphafleg fyrirsögn þessarar fréttar var “Framsóknarfraukur furða sig á forsetanum”. Þarna hljóp ofstuðlunaráráttan með blaðamanninn í gönur. Samkvæmt Snöru er orðið “frauka” talið niðrandi en aldrei var ætlunin að gera lítið úr þeim Vigdísi og Guðfinnu. Eru þær beðnar afsökunar á mistökunum.

Þá vill Guðfinna ætla að blaðamaður geri henni upp skoðanir með því að telja hana forviða á forsetanum þegar hún talar um að krúttlegt væri ef hann yrði “virkur í athugasemdum”. Þeirri ábendingu Guðfinnu er hér með komið á framfæri. Það er sannarlega ekki undir neinum kringumstæðum stefna Vísis að gera fólki upp skoðanir. Hefur fréttin verið lagfærð að teknu tilliti til þess.


Tengdar fréttir

Forsetinn segist ekki þurfa óumbeðna launahækkun

Bjarni Benediktsson segist hafa fullan skilning á að fólki þyki úrskurður kjararáðs vera úr öllum takti við það sem hefur verið að gerast í kjaramálum í landinu á undanförnum misserum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×