Innlent

Frammámönnum í Þjóðfylkingunni vísað á dyr og hótað lögregluvaldi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Gunnlaugur Ingvarsson segist afar ósáttur.
Gunnlaugur Ingvarsson segist afar ósáttur. vísir/vilhelm
Fjórir flokksmenn Íslensku þjóðfylkingarinnar voru reknir úr flokknum í gær og þeim hótað lögregluvaldi eftir að upp úr sauð á flokksstjórnarfundi í gærkvöldi. Ólga hefur verið innan flokksins eftir að oddvitar Reykjavíkurkjördæmanna tveggja, þeir Gunnlaugur Ingvarsson og Gústaf Níelsson, drógu framboð sín til baka skömmu áður en skila átti inn framboðslistum.

Gunnlaugur segir að lesin hafi verið upp yfirlýsing á fundinum þess efnis að þeir einstaklingar sem dregið hafa framboð sín til baka; hann sjálfur, Gústaf, Inga Guðrún Halldórsdóttir og Svanhvít Brynja Tómasdóttir, væru ekki lengur velkomin í flokkinn.

Sjá einnig:Sakar Gústaf um stuld á gögnum

„Það varð allt gjörsamlega vitlaust á þessum fundi og okkur var vísað á dyr þarna, þessari svokölluðu fjórmenningaklíku. Þarna var lesin upp yfirlýsing af formanninum þar sem hann sagði að við værum rekin úr flokknum og flokksstjórninni og hótuðu lögregluvaldi til að láta henda okkur út,“ segir Gunnlaugur í samtali við Vísi, en hann telur að um fimmtán manns hafi verið á umræddum flokksstjórnarfundi sem haldinn var á skrifstofu flokksins í Hafnarfirði.

Hann segir það af og frá að þau fjögur hafi eyðilagt framboð flokksins. Það sé að öllu leyti við formanninn að sakast, sem hafi sýnt þeim algjört vantraust. „Ég er rosalega ósáttur við að fólk sé að kenna okkur um, að við séum að eyðileggja eitthvað. Eyðileggingin var gjörsamlega formannsins sjálfs og þeirrar klíku í kringum hann. Ég vísa allri ábyrgð á hendur því að framboðið komi ekki fram í Reykjavík á hendur formanninum.“

Aðspurður segist Gunnlaugur hafa talið að tilefni fundarins hafi verið að boða til auka landsfundar. „Þannig að flokkurinn gæti kosið sér nýja forystu eftir að hafa krassað undir forystu Helga Helgasonar formanns.“


Tengdar fréttir

Gústaf harðorður í garð formanns ÍÞ

"Hann getur ekki tekið ákvörðun, þessi maður. Það er ekki hægt að vinna með honum. Hann kann engin vinnubrögð,“ segir Gústaf.

Sakar Gústaf um stuld á gögnum

Formaður Íslensku þjóðfylkingarinnar segir fullyrðingar Gústafs Níelssonar og Gunnlaugs Ingvarssonar um sig, vera undarlegar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×