Fram og aftur blindgötuna

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 23. desember 2011 22:00
Götumálarinn.
Götumálarinn.
Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar:
Bækur. Götumálarinn Skáldævisaga. Þórarinn Leifsson. Mál og menning.

Nítján ára drengur er tekinn af lögreglunni í Ronda á Spáni. Hann er einn á ferð, hefur ráfað stefnulaust um og veit ekki hvert förinni er heitið. Veit aðeins að hana verður að fara. Eftir barning við lögregluna þar sem myndlistarhæfileikar hans verða honum til bjargað er hann sendur með lest til Sevilla, þar sem hann sofnar bak við lestarstöð. „Það er ágætt að vakna undir runna."

Þórarinn Leifsson gerði það sem marga unga menn dreymir um, að gefa skít í hið hefðbundna, smáborgaralega líf og flakka frjáls um heiminn. Láta hverjum degi nægja sína þjáningu og lifa í núinu. Flestir heykjast á gjörningnum, en Þórarinn var aðeins 19 ára þegar hann lagði í hann árið 1985. Nú, 26 árum síðar, deilir hann þessari reynslu sinni með lesendum.
Og reynsla er það. Þórarinn dregur lesandann með sér í flakkið, við leggjumst við hlið hans undir runna, reykjum hass með hústökufólki, sitjum í steikjandi sólarhita og málum Maríu mey á götusteinana eða bregðum okkur yfir til Marokkó.

Þórarinn dregur ekkert undan í sögunni og hann er fráleitt að rómantísera líf flökkumannsins. Stundum líða dagar án þess að hann fái að borða, hreinlæti er er lítið sem ekkert og félagsskapurinn misfélegur. Verst er að meira að segja í flakkinu verður ekki komist undan tilbreytingarleysi hversdagsins. Í raun liggur vegferðin um blindgötu, götumálarinn ráfar fram og aftur um hana og er jafn fastur í viðjum vanans og skrifstofumaður sem stendur grátandi yfir hjólinu sínu við runnann sem er svefnstaður Tóta.

Þórarinn sýnir og sannar með Götumálaranum að hann er listagóður rithöfundur. Textinn líður vel, hann er laus við alla tilgerð, gengur beint til verks og vinnur þannig með framvindu sögunnar. Stíllinn er blátt áfram, manni er steypt beint í söguna og fylgir söguhetjunni eftir í hans Bjarmalandsför. Inn í frásögnina er skotið sögu móður og systur hans sem eðlilega hafa áhyggjur af drengnum. Í þeim köflum skiptir höfundur persónufornafninu ég út fyrir nafn sitt og fjarlægir sjálfan sig og lesandann þannig úr framvindunni, um leið og hann undirstrikar fjarlægð mæðgnanna við hann. Þetta gerir Þórarinn vel.


Fram og aftur blindgötuna
Einstaka minningabrot úr æsku sem hefur verið allt annað en auðveld stinga líka upp kollinum. Á blátt áfram hátt tekst Þórarni að veita innsýn í oft og tíðum hörmulegar aðstæður, án þess að gerast væminn eða tilfinningasamur. Allt í stíl við söguna sjálfa. Þá skipa frábærar myndir í upphafi hvers kafla stóran sess og kallast á við efni sögunnar.

Götumálarinn er stórgóð bók og vel skrifuð. Listilega spunninn þráður um heim sem flestum er hulinn, margir sjá í hillingum en höfundur sýnir eins og er.

Niðurstaða: Mögnuð saga af flakki unglings um Spán og Marokkó og hvernig hann þokast áfram á þroskaferlinum.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Gagnrýni 27. mar. 2012 12:00

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að k...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Fram og aftur blindgötuna