Handbolti

Fram náði tveggja stiga forskoti á toppnum | ÍBV upp í 3. sætið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Steinunn Björnsdóttir skoraði 10 mörk þegar Fram vann Fylki.
Steinunn Björnsdóttir skoraði 10 mörk þegar Fram vann Fylki. vísir/stefán
Þremur leikjum er lokið í Olís-deild kvenna í handbolta í dag.

Fram náði tveggja stiga forskoti á toppi deildarinnar með 23-25 sigri á Fylki í Árbænum.

Steinunn Björnsdóttir átti stórleik í liði Fram og skoraði 10 mörk. Ragnheiður Júlíusdóttir kom næst með sex mörk.

Christine Rishaug og Thea Imani Sturludóttir drógu vagninn hjá Fylki en þær skoruðu samtals 17 af 23 mörkum liðsins. Fylkir er áfram á botni deildarinnar með sex stig.

Mörk Fylkis:

Christine Rishaug 9, Thea Imani Sturludóttir 8, Rebekka Friðriksdóttir 3, Hrafnhildur Irma Jónsdóttir 2, Vera Pálsdóttir 1.

Mörk Fram:

Steinunn Björnsdóttir 10, Ragnheiður Júlíusdóttir 6, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 5, Hildur Þorgeirsdóttir 2, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 1, Hafdís Shizuka Iura 1.

Lovísa Thompson skoraði sjö mörk.Vísir/Stefán
Nýkrýndir bikarmeistarar Stjörnunnar töpuðu með fjögurra marka mun fyrir Gróttu, 28-24, á Nesinu.

Þrátt fyrir sigurinn eru Íslandsmeistararnir enn í 6. sæti deildarinnar. Þeir eiga hins vegar ágætis möguleika á að komast í úrslitakeppnina.

Lovísa Thompson skoraði sjö mörk fyrir Gróttu sem var 13-11 yfir í hálfleik.

Rakel Dögg Bragadóttir skoraði sex mörk í liði Stjörnunnar sem missti Fram tveimur stigum fram úr sér í dag.

Mörk Gróttu:

Lovísa Thompson 7, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 4, Emma Havin Sardardóttir 4, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4, Unnur Ómarsdóttir 3, Þórey Anna Ásgeirsdóttir 3, Sunna María Einarsdóttir 3.

Mörk Stjörnunnar:

Rakel Dögg Bragadóttir 6, Helena Rut Örvarsdóttir 5, Sólveig Lára Kjærnested 4, Brynhildur Kjartansdóttir 3, Hanna G. Stefánsdóttir 2, Stefanía Theodórsdóttir 2, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 1, Aðalheiður Hreinsdóttir 1.

Ester Óskarsdóttir var markahæst í liði ÍBV.Vísir/Vilhelm
ÍBV komst upp í 3. sæti deildarinnar með 24-20 sigri á Val í Eyjum. ÍBV hefur nú náð í sjö stig í síðustu fjórum leikjum sínum.

Eyjakonur leiddu nær allan leikinn. Staðan var 10-9 í hálfleik en um miðjan seinni hálfleik skoraði ÍBV fjögur mörk í röð og náði góðu forskoti sem Valskonum tókst ekki að vinna upp. Lokatölur 24-20, ÍBV í vil.

Ester Óskarsdóttir skoraði átta mörk fyrir ÍBV en Diana Satkauskaite var markahæst í liði Vals með sex mörk.

Mörk ÍBV:

Ester Óskarsdóttir 8, Sandra Erlingsdóttir 6/4, Karólína Bæhrenz Lárudóttir 4, Sandra Dís Sigurðardóttir 3, Telma Silva Amado 2, Greta Kavailuskaite 1.

Mörk Vals:

Diana Satkauskaite 6/3, Kristín Guðmundsdóttir 5/1, Vigdís Birna Þorsteinsdóttir 3, Morgan Marie Þorkelsdóttir 2, Eva Björk Hlöðversdóttir 2, Kristine Håheim Vike 1, Birta Fönn Sveinsdóttir 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×