Handbolti

Fram með fullt hús stiga

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ragnheiður skoraði fjögur mörk fyrir Fram í kvöld.
Ragnheiður skoraði fjögur mörk fyrir Fram í kvöld. Vísir/Valli
Fram vann þriggja marka sigur, 19-22, á KA/Þór fyrir norðan í 2. umferð Olís-deildar kvenna í kvöld. Fram var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 9-13.

Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir og Ragnheiður Júlíusdóttir skoruðu báðar fjögur mörk fyrir Fram, en Martha Hermannsdóttir var markahæst í liði KA/Þórs með sex mörk.

Fram situr í toppsæti deildarinnar með fullt hús stiga eftir tvo leiki, en KA/Þór er í 7. sæti. Önnur umferðin klárast með fimm leikjum á morgun.

Markaskorarar KA/Þ​órs:

Martha Hermannsdóttir 6, Katrín Vilhjálmsdóttir 5, Paula Chirila 3, Birta Fönn Sveinsdóttir 3, Laufey Lára Höskuldsdóttir 1, Harpa Rut Jónsdóttir 1.

Markaskorarar Fram:

Ragnheiður Júlíusdóttir 4, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 4, Marthe Sördal 3, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 3, Elísabet Gunnarsdóttir 3, María Karlsdóttir 3, Steinunn Björnsdóttir 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×