Handbolti

Fram aftur eitt á toppnum

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Frábært gengi Fram
Frábært gengi Fram vísir/pjetur
Fram lagði Fylki með níu marka mun 29-20 í Olís deild kvenna í handbolta í dag. Fram er því aftur eitt á toppi deildarinnar með fullt hús stiga.

Lítil spenna var í leiknum en Fram var einnig níu mörkum yfir í hálfleik 18-9.

Fram hefur unnið alla tíu leiki sína en Fylkir er með 8 stig um miðja deild.

Sigurbjörg Jóhannsdóttir skoraði 7  mörk fyrir Fram og Marthe Sördal 6. Hjá Fylki var Sigrún Birna Arnardótir atkvæðamest með 6 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×