Erlent

Frakkar rýma búðir flóttafólks í Calais við Ermarsundsgöngin

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Sumir íbúar tjaldbúðanna höfðu komið sér fyrir ofan á bráðabirgðaskýlum sínum þegar lögreglan mætti til leiks í gær.
Sumir íbúar tjaldbúðanna höfðu komið sér fyrir ofan á bráðabirgðaskýlum sínum þegar lögreglan mætti til leiks í gær. Visir/EPA
Franska lögreglan hófst snemma í gærmorgun handa við að rýma að hluta flóttamannabúðirnar í Calais, skammt frá mynni Ermarsundsganganna. Á mánudaginn hafði lögreglan fjarlægt hluta búðanna.

Búðir flóttafólks hafa verið verið á ýmsum stöðum í Calais eða næsta nágrenni í nærri tvo áratugi. Þær hafa áður verið rýmdar, en jafnan risið annars staðar áður en langt um líður.

Flóttafólkið hefur safnast saman í Calais í von um að komast inn í Ermarsundsgöngin og yfir til Bretlands. Erfitt er að komast inn á afgirt svæðið umhverfis innganginn að Ermarsundsgöngunum, en margir reyna að komast inn á svæðið og í gegnum göngin með flutningabílum, og sitja um slíka bíla í von um að geta komist óséðir um borð. Þá taka smyglarar fé af flóttafólkinu fyrir að koma því yfir til Englands.

Lögreglan hefur mætt harðri mótstöðu frá flóttafólkinu. Átök hafa brotist út og lögreglan hefur óspart beitt táragasi. Nokkrir hafa verið handteknir.

Þúsundir flóttamanna hafa dvalið í búðunum undanfarið, flestir frá Mið-Austurlöndum, Afríku og Afganistan. Þeir dveljast þar í bráðabirgðaskýlum af ýmsu tagi, sumir í upphituðum gámum, aðrir í tjöldum.

Á mánudaginn voru um það bil hundrað hreysi rifin niður. Eldar kviknuðu í nokkrum þeirra.

Bretar hafa jafnan krafist þess að frönsk stjórnvöld héldu aftur af flóttafólki, sem vill komast yfir til Bretlands. Þá hafa Bretar fjármagnað margvíslegar öryggisráðstafanir og girðingar við inngang ganganna hjá Calais.

Flóttafólkið sækist eftir því að komast til Englands til að sækja þar um hæli frekar en að sækja um hæli í Frakklandi eða öðrum löndum sunnar í Evrópu. Margir þeirra, sem komnir eru til Calais, eiga ættingja í Bretlandi og vilja þess vegna komast þangað.

Stjórnvöld í Frakklandi segja að enginn verði fluttur nauðugur frá búðunum í Calais, heldur sé flóttafólkinu boðið upp á ýmsa möguleika. Það muni taka nokkrar vikur að finna lausn á því.

Á morgun ætla þeir David Cam­eron, forsætisráðherra Bretlands, og François Hollande Frakklandsforseti að hittast til að ræða málefni flóttafólks og farandfólks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×