Körfubolti

Fráfarandi þjálfari Grindavíkur: Rétt skal vera rétt, ég var rekinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Björn Steinar lék lengi með karlaliði Grindavíkur.
Björn Steinar lék lengi með karlaliði Grindavíkur. vísir/stefán
Eins og frá var greint á Vísi í fyrradag er Björn Steinar Brynjólfsson hættur sem þjálfari kvennaliðs Grindavíkur.



Í yfirlýsingu á Facebook-síðu körfuknattleiksdeildar Grindavíkur var greint frá því að Björn Steinar hefði hætt að eigin frumkvæði vegna slaks gengi liðsins.



Nú fyrir skömmu birti Björn Steinar langan pistil á Facebook þar hann segir að það sé rangt að hann hafi sagt upp störfum. Hann hafi verið rekinn en gert þau mistök að sættast á ofangreinda yfirlýsingu.

„Rétt eftir að leik lauk gegn Stjörnunni í Ásgarði var ég kallaður til fundar og mér tjáð að minna krafta væri ekki lengur óskað sem þjálfara liðsins. Í hálfgerðu áfalli vegna fréttanna, sem komu mér mjög á óvart, gerði ég þau mistök að sættast á yfirlýsingu þar sem uppgefin ástæða var að ég hefði sagt upp störfum sjálfviljugur,“ skrifar Björn Steinar.

„Í stuttu máli finnst mér ekki hafa verið stutt við bakið á mér í mínu starfi og finnst ég að minnsta kosti skulda sjálfum mér að standa með mér sem persónu og þjálfara. Ég vil einnig biðjast afsökunar á að hafa ekki verið hreinskilinn í upphafi og sagt satt frá. Rétt skal vera rétt, ég var rekinn.“

Grindavík hefur aðeins unnið tvo af sjö deildarleikjum sínum það sem af er tímabils.vísir/stefán
Björn Steinar segir ennfremur að uppgefin ástæða brottrekstursins hafi verið umkvörtun leikmanns Grindavíkurliðsins. Hann hafi hins vegar ekki orðið var við óánægju innan leikmannahópsins.

„Uppgefin ástæða brottrekstrar er alkunn, svo alkunn að einhverjir myndu kalla hana klisju. Leikmaður virðist hafa borið fram kvörtun og niðurstaðan sú að þjálfarinn hafi „misst klefann“. Ein af ástæðum upphaflegrar yfirlýsingar var einhvers konar skömm yfir því að sú kvörtun hafi komið fram en stundum hugsar maður skýrar þegar maður nær stjórn á tilfinningunum. Ég hef í starfi mínu reynt að halda uppi hreinskilnum og opnum samskiptum við mína leikmenn, meðal annars á einstaklingsfundum, þar sem ég gat ekki skynjað þá óánægju sem talað er nú um. Þess utan hefur stjórn á engum tímapunkti gefið í skyn við mig að vandamál af því tagi sé til staða,“ skrifar Björn Steinar.

Í gær var gekk Grindavík frá samningi við Bjarna Magnússon um að stýra liðinu út tímabilið.Bjarni er tíundi þjálfari kvennaliðs Grindavíkur á undanförnum fimm árum. Björn Steinar segir ástæðu til að kanna hvað veldur þessum tíðu þjálfaraskiptum í Grindavík.

„Vil þó að endingu óska félaginu mínu þess að einhvers konar sjálfskoðun fari fram á því hvernig haldið er um hlutina og á hvaða forsendum ákvarðanir eru teknar í kringum þetta frábæra kvennalið. Að meistaraflokkslið kvenna í Grindavík sé nú að hefja samstarf við sinn tíunda þjálfara á einhverjum 5 árum hlýtur að vera umhugsunarefni og ástæða til kanna hvað veldur,“ skrifar Björn Steinar en færslu hans má lesa í heild sinni hér að neðan.

Jón Gauti Dagbjartsson, framkvæmdarstjóri körfuknattleiksdeildar Grindavíkur, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.


Tengdar fréttir

Grindvíkingar í þjálfaraleit

Björn Steinar Brynjólfsson hefur látið af störfum sem þjálfari Grindavíkur í Domino's deild kvenna í körfubolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×