Viðskipti innlent

Fræðslufundur um hlutafjárútboð Símans í beinni

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Orri Hauksson, forstjóri Símans, kynnir félagið á fundinum og tekur þátt í pallborðsumræðum.
Orri Hauksson, forstjóri Símans, kynnir félagið á fundinum og tekur þátt í pallborðsumræðum. Vísir/Vilhelm
Vísir sendir út beint frá fræðslufundi sem VÍB heldur um almennt hlutafjárútboð Símans. Útboðið stendur dagana 5.-7. október næstkomandi.

Orri Hauksson, forstjóri Símans, kynnir félagið á fundinum og tekur þátt í pallborðsumræðum að kynningu lokinni.

Opið verður fyrir spurningar úr sal og einnig er hægt að koma spurningum til panelsins með tölvupósti á fundarstjori@vib.is og á Twitter með auðkenninu #VIBfundur.

Þátttakendur í pallborðsumræðunum verða:

  • Edda Hermannsdóttir, umræðustjóri
  • Alexander Jensen Hjálmarsson, formaður Ungra fjárfesta
  • Katrín Olga Jóhannesdóttir, stjórnarformaður Já
  • Orri Hauksson, forstjóri Símans
  • Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans
Útsendinguna má sjá hjá hér fyrir neðan, en fundurinn hefst klukkan 8.30.

Uppfært: Fundinum lauk klukkan 10 en að neðan má sjá upptöku frá fundinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×