Innlent

Frábært myndband af Kvennafrídeginum

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá stemminguna sem myndaðist í miðbæ Reykjavíkur á Kvennafrídeginum í dag. Samhugur og gleði einkenndi andrúmsloftið. Meðal annars kom hópur kvenna í skrautlegum búningum sér fyrir á svölum í Bankastræti í og dansaði af miklum móð við lagið Sísí fríkar út með Grýlunum.

Á bilinu fjörutíu til fimmtíu þúsund konur lögðu niður störf í dag og fylktu liði niðrí miðbæ. Þær voru ánægðar með daginn þrátt fyrir ömurlegt veður. Rauður þráður var strengdur frá Hæstarétti niður í héraðsdóm til að minna á kynbundið ofbeldi. Konum þykir margt hafa þokast í jafnréttisátt frá fyrsta kvennafrídeginum 1975, þótt enn sé langt í land.

Fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum var beinlínis lokað í dag klukkan 14:25 og þurftu þá karlarnir að taka við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×