Frá Írak á Akranes

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 23. desember 2011 12:00
Ríkisfang: Ekkert, flóttinn frá Írak á Akranes.
Ríkisfang: Ekkert, flóttinn frá Írak á Akranes.
Sigríður Björg Tómasdóttir skrifar:
Bækur. Ríkisfang: Ekkert. Sigríður Víðis Jónsdóttir. Mál og menning.

Bókin Ríkisfang: Ekkert eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur telst til tíðinda hér á landi, en ekki hefur áður verið gerð jafn metnaðarfull tilraun til að gera grein fyrir sögu flóttamanna sem hingað hafa ratað.

Í bókinni er rakin saga átta kvenna sem komu til Íslands með börnum sínum haustið 2008. Konurnar áttu það sameiginlegt að vera ríkisfangslausir Palestínumenn, afkomendur flóttamanna sem hrakist höfðu frá Palestínu við stofnun Ísraelsríkis. Eftir að stríðið hófst í Írak, þar sem Palestínumenn höfðu notið ákveðinna fríðinda í stjórnartíð Saddams Husseins, versnaði staða þeirra og konurnar neyddust eins og fjölmargir aðrir Palestínumenn búsettir í Írak til þess að flýja í Al Waaled-flóttamannabúðirnar. Þar bjuggu þær þegar íslensk stjórnvöld afréðu að bjóða hópi einstæðra mæðra að setjast að hér á landi en flestar höfðu konurnar misst mann sinn í umróti stríðsins.

Höfundur bókarinnar hefur frásögn sína einmitt í Al Waaled-búðunum. Þaðan liggur leiðin til Bagdad og söguhetjurnar eru kynntar til leiks. Aðaláherslan er á sögur þeirra Línu Mazar og Aydu Abdullah. Lífshlaup þeirra er rakið, fjölskylduaðstæðum lýst, greint frá brúðkaupum og barneignum. Frásögnin er ekki í tímaröð, í upphafi bókarinnar hefur Íraksstríðið staðið í þrjú ár, en svo er flakkað fram og aftur í tímann, allt til Palestínu árið 1947.

Inn í frásögnina af konunum og fjölskyldum þeirra fléttast heimssagan. Dregin er upp mynd af því hvernig valdatafl stjórnmálamanna hefur hrikaleg áhrif á líf kvennanna sem lentu í flóttamannabúðum vegna Íraksstríðsins og sátu þar ríkisfangslausar vegna eftirmála stofnunar Ísraelsríkis.

Það er gott framtak hjá Sigríði að skrá sögu kvennanna og skynsamlegt að hafa sögu tveggja kvenna af átta í forgrunni. Þannig öðlast saga Línu og Aydu meiri dýpt og lesendur tengjast þeim betur. Á köflum er þó eins og höfundur reyni að koma of miklu að. Fyrir vikið verður frásögn bókarinnar nokkuð losaraleg, víða hefði mátt stytta hana og skerpa.

Uppsetning bókarinnar eru ágæt, fleiri myndir hefðu gætt hana meira lífi, en væntanlega hefur ekki verið úr miklu að moða. Korti sem sýnir helstu sögustaði er komið fyrir á innanverðri bókakápu en gjarnan hefði mátt draga upp kort af af flóttamannabúðunum til að lesandi gæti átta sig betur á skipan mála þar.

Sigríður er reyndur blaðamaður og frásagnarháttur bókarinnar ber þess vitni. Best tekst henni upp þegar hún lýsir lífi kvennanna í flóttamannabúðunum, í Badgad og ekki síst á Akranesi og notar til þess einfaldan og skýran stíl. Stundum segir Sigríður hins vegar söguna frá sínum sjónarhóli og verður þá stíllinn gjarnan tilfinningahlaðinn, sem tekst ekki alltaf vel upp.
Ríkisfang: Ekkert er ekki hnökralaus bók en á heildina litið er hún góð og þarft innlegg í umræðu um flóttafólk á Íslandi og hlutskipti þess.

Niðurstaða: Áhugaverð saga kvenna sem hafa lifað tímana tvenna.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Gagnrýni 27. mar. 2012 12:00

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að k...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Frá Írak á Akranes