Fóstbræðralag

Fréttablaðið Fastir pennar 04. febrúar 2012 06:00
Fóstbræðralag
Þorsteinn Pálsson skrifar:
Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn, en þó ekki sem skyldi. Ástæðan fyrir því að þær ættu að vekja meiri athygli er sú að þar birtist fyrirmynd að nýrri pólitískri stöðu á landsvísu. Pólitísk samvinna VG og Samfylkingarinnar sem sjálfstæðra flokka er að breytast í eins konar fóstbræðralag sem kemur fram sem ein heild.

Í tengslum við landsfundi stjórnarflokkanna í vetrarbyrjun lýstu formenn beggja yfir því að þeir stefndu að áframhaldandi samstarfi eftir næstu kosningar. Það sem meira var: Þeir töldu að eitt og það sama ætti yfir báða flokkana að ganga. Annað hvort yrðu þeir saman í ríkisstjórn eða saman í stjórnarandstöðu.

Segja má að breytingarnar á ríkisstjórninni um áramót hafi endurspeglað fyrstu verklegu framkvæmd þéttari samstöðu af þessu tagi. Þá sömdu flokksformennirnir um gagnkvæman ruðningsrétt. Hvor þeirra fékk að víkja þeim ráðherra úr röðum samstarfsflokksins sem honum var í mest í nöp við. Þetta er nýlunda.

Viðræðurnar um myndun meirihluta í Kópavogi eru annað dæmi um framkvæmd þessara áforma flokksformannanna. Í samræmi við viljayfirlýsingu þeirra ákváðu bæjarfulltrúar beggja að lúta sama lögmáli: Þeir yrðu saman í meirihluta eða minnihluta. Ekkert fengi klofið samstarf þeirra þannig að líta mætti á þá sem tvær sjálfstæðar heildir.

Hamskipti

Landsdómsmálið er þriðja dæmið um að samstarf flokkanna er að breytast í fóstbræðralag. Þegar það mál kom fyrst til kasta Alþingis greiddi forsætisráðherra atkvæði gegn ákæru og sagði að málið væri með öllu óháð stjórnarsamstarfinu. Formaður Samfylkingarinnar snýr nú við blaðinu og gerir það að ríkisstjórnarmáli í samræmi við óskir VG.

Forsætisráðherra sagði þannig á nýafstöðnum flokksráðsfundi Samfylkingarinnar að það jafngilti því að setja fleyg í ríkisstjórnarsamstarfið að falla frá ákæru. Fyrir rúmu ári byggðist afstaðan á persónubundnu lögfræðilegu mati hvers þingmanns. Nú er fóstbræðralag stjórnarflokkanna í húfi. Þessi hamskipti bera órækt vitni um nýja vídd í samstarfi stjórnarflokkanna og þéttara bræðralag.

Fjórða fóstbræðralagsdæmið birtist í sameiginlegri grein formanna stjórnarflokkanna í þessu blaði í tilefni af þriggja ára afmæli stjórnarsamstarfsins. Þar segir það eitt um Evrópusambandsmálið að verið sé að kanna, að ósk Alþingis, kosti og galla aðildar. Í tilefni tímamótanna hefur formaður Samfylkingarinnar einfaldlega fallist á þá skoðun VG að samþykkt Alþingis um að sækja um aðild að Evrópusambandinu feli aðeins í sér könnun á kostum þess og göllum.

Fram til þessa hefur Samfylkingin talið það styrkja stöðu sína að hafa sérstöðu í þessu stóra máli. Nú hefur hún verið rækilega þynnt út með umtalsverðri pólitískri eftirgjöf. En á móti uppsker Samfylkingin traustara samstarf við VG. Þingmenn beggja flokkanna fá meira öryggi fyrir því að þeir séu í raun tilbúnir að deila örlögum saman í blíðu og stríðu innan sem utan stjórnar.

Þetta síðasta skref í samstarfi flokkanna í tilefni afmælisins ætti um leið að vera gleðiefni fyrir andstæðinga aðildarumsóknarinnar.

Ekki er allt sem sýnist

Almennar stjórnmálafréttir gefa aðra mynd af stjórnarsamstarfinu. Þær snúast yfirleitt um hatrömm átök, togstreitu, brigslyrði og væringar. Ekkert bendir til að þar sé ofhermt. Hvernig getur sú mynd rímað við þá kenningu að hefðbundið ríkisstjórnarsamstarf tveggja sjálfstæðra flokka sé að breytast í fóstbræðralag?

Þegar betur er að gáð liggur skýringin í augum uppi. Afleiðingin af átökum Steingríms J. Sigfússonar við vinstrivæng Ögmundar Jónassonar hefur leitt til þess að formaðurinn hefur lagt ofurþunga á að draga Samfylkinguna lengra til vinstri. Jóhanna Sigurðardóttir hefur létt honum róðurinn með því að færa Samfylkinguna þangað. Vinstrivængurinn í Samfylkingunni hefur náð undirtökum í flokknum og frjálslyndum ráðherrum verið vikið til hliðar. Það hefur eðlilega orsakað ólgu.

Þessi bræðralagsþróun er því bæði afleiðing og orsök innbyrðis átaka. Þau hafa rýrt traust stjórnarflokkanna og forystumanna þeirra meðal almennings. En fóstbræðralagið er andsvar leiðtoganna. Pólitískt líf beggja er undir því komið að það haldi og svo virðist sem báðir hafi meirihlutastuðning innandyra til að dýpka samstarfið í þeim tilgangi.
Ekki er á vísan að róa með atfylgi kjósenda við þetta nýja fóstbræðralag en stjórnin gæti samt haldið velli eftir næstu kosningar með aðstoð Guðmundar Steingrímssonar og hugsanlega Framsóknarflokksins, þótt smáflokkaaðstoð hafi ekki nýst þeim til lengdar í Kópavogi.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óþolandi ógagnsæi

Seðlabanki Íslands kynnti á miðvikudag niðurstöðu þriggja gjaldeyrisútboða sem farið hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónæg rök fyrir hjálmaskyldu

Kæri lesandi, settir þú á þig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega að tala við þig ...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Fóstbræðralag