Fótbolti

Forseti og leikmenn Lazio heimsóttu ársmiðahafa

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lotito ásamt Miroslav Klose.
Lotito ásamt Miroslav Klose. vísir/getty
Það er lítil stemning fyrir leiktíðinni hjá Lazio og ársmiðasala fór skelfilega af stað.

Aðeins ellefu stuðningsmenn félagsins sáu ástæðu til þess að fjárfesta í ársmiða er þeir fóru í sölu. Það er auðvitað ævintýralega lélegt en ástæðan er reiði út í Lotito og stjórn hans.

Forseti félagsins, Claudio Lotito, vill ólmur endurbyggja sambandið við stuðningsmenn félagsins og hann fékk því fína hugmynd.

Að hann og leikmenn liðsins myndu heimsækja þessa ellefu sem keyptu ársmiða.

Stuðningsmennirnir voru heldur betur hissa er þeir opnuðu dyrnar og sáu hverjir stóðu fyrir utan. Þessir ellefu fengu miklar þakkir og áritaða treyju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×