Forsetahjónin heimsóttu Grundaskóla 31. janúar 2006 12:23 Ólafur Ragnar Grímsson forseti.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsóttu Grundaskóla á Akranesi í morgun. Forsetahjónin kynntu sér starfsemi skólans, en hann fékk Íslensku menntaverðlaunin í fyrra fyrir að sinna nýsköpunarstarfi vel. Það ríkti mikil eftirvænting meðal nemenda og starfsfólks Grundaskóla þegar Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsóttu skólann í morgun. Forsetahjónin kynntu sér starfsemi skólans og gengu á milli bekkjarstofa. Meðal þess sem vakti athygli Ólafs Ragnars og Dorritar var kennsla í skyndihjálp og æfðu nokkrir nemendur sig á því að taka púlsinn á forsetafrúnni. Mesta athygli forsetans vakti þó kennsla um Leif heppna og ræddi hann lengi við börnin um Guðrúnu Þorbjarnardóttur sem hann sagði að sínu mati mesta kvenkyns landkönnuð mannkynssögunnar. "Ég hef stundum sagt að það hafi verið mikil umræða um háskólastigið og framhaldsskólastigið og við höfum kannski vanrækt að skoða það mikla nýsköpunarstarf og það merka starf sem unnið er í grunnskólunum. Það sjáum við í Grundaskóla hér í dag," sagði Ólafur Ragnar Grímsson forseti eftir að hafa litið á skólastarfið. Forsetinn sagði gaman að kynnast því hvernig bekkjum væri blandað saman, þannig að nemendur úr nokkrum bekkjum væru saman í sumum tímum og með öðrum nemendum í öðrum tímum. Það vakti áhuga forsetans að verið var að kenna börnunum fornsögurnar og söguna af Leifi Eiríkssyni. "Þegar ég var í skóla var það ekki gert fyrr en ég var kominn í menntaskóla, þannig að það er greinilega búið að flytja stóran hluta af þeirri umfjöllun sem áður var í menntaskólum inn í grunnskólann og það virðist bara ganga mjög vel."
Fréttir Innlent Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Innlent Fleiri fréttir Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtisöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Sjá meira