Innlent

Formaður ÍTR: Hækkun á stökum miðum ekki hluti af stærra verðhækkunarplotti

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aðsókn í Vesturbæjarlaug hefur aukist töluvert undanfarið ár eða síðan nýr heitur pottur var tekinn í notkun.
Aðsókn í Vesturbæjarlaug hefur aukist töluvert undanfarið ár eða síðan nýr heitur pottur var tekinn í notkun. Vísir/Daníel
Hækkun fullorðinsgjalds í sundlaugar Reykjavíkur úr 650 krónum í 900 krónur frá og með 1. nóvember hefur lagst öfugt ofan í margan borgarbúann. Um 38 prósenta hækkun er að ræða en aðgerðin er hluti af sparnaðaraðgerðum borgaryfirvalda.

Þórgnýr Thoroddsen, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur og varaborgarfulltrúi Pírata, segir markmiðið að ná frekari tekjum úr sundlauginni. Hann minnir á að engin hækkun verður í verði afsláttarkorta en hægt er að fjárfesta í tíu og tuttugu skipta kortum í sundlaugum auk árskorta.

„Þetta á síst að bitna á þeim sem fara reglulega í sund, stærstu notendum sundlauganna,“ segir Þórgnýr. „Við ætlum að ná hærri tekjum af þeim sem koma sjaldan í sund. Stærsti hópur þeirra er auðvitað erlendir ferðamenn.“

Þórgnýr Thoroddsen, formaður ÍTR.
Ekki hluti af stærra plotti

Þórgnýr segir að breytingin eigi að auka tekjur borgarinnar um í kringum 40 milljónir króna. Hingað til hafi tekjur af sundlaugunum numið í kringum 65 prósent af kostnaði. Hlutfallið eigi að hækka í 70 prósent með breytingunni.

Töluverð umræða hefur verið á samfélagsmiðlum vegna hækkunarinnar og sýnist sitt hverjum. Sumir segja breytinguna engu máli skipta fyrir neytendur þar sem afsláttarkortin hækki ekki og frekari tekjur þurfi af ferðamönnum. Því séu aðgerðir borgarinnar skiljanlegar.

Hins vegar benda aðrir á að þetta hljóti að vera fyrsta skrefið hjá borgaryfirvöldum. Næst muni afsláttarkortin hækka í verði.

„Ég get alveg staðfest að það er ekki í umræðunni. Það er hvorki markmiðið eða eitthvað plott að hækka fyrst einskiptiskortin og svo afsláttarkortin,“ segir Þórgnýr. Eðli málsins samkvæmt geti hann ekki útilokað að það komist einhvern tímann í umræðuna en svo sé ekki nú.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×