Tónlist

Forfallinn körfuboltaaðdáandi sem gekk í hús og boðaði fagnaðarerindið

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Tónlistarmaðurinn Prince lést á fimmtudaginn aðeins 57 ára að aldri. Fréttablaðið heiðrar minningu þessa mikla og sérvitra meistara með því að rifja upp nokkur augnablik frá löngum og viðburðaríkum ferli þessa áhrifamikla tónlistarmanns.

1979


Platan Prince kemur út og verður platínuplata. Inniheldur lögin I Wanna Be Your Lover og Why You Wanna Treat Me So Bad?

1984

Prince leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni Purple Rain og sér um tónsporið ásamt hljómsveitinni The Revolution. Purple Rain er löngu orðin sígild „költ“-mynd.

1993

Prince breytir sviðsnafninu sínu í lógó sem er blanda af táknunum fyrir kynin og var kallað „The Love Symbol“. Talað var um Prince sem „The Artist Formerly Known as Prince“.

1998

Platan Crystal Ball kemur út og er einungis hægt að kaupa hana á internetinu (og reyndar líka í gegnum síma í númerinu 1-800 New Funk) í gegnum netþjónustu Prince, NPG Music Club. Árið 2006 fær hann svo Webby-verðlaunin fyrir að vera fyrsti tónlistarmaðurinn til að gefa út plötu á internetinu.

2006

Risaár fyrir Prince. Platan 3121 kemur út og lagið Te Amo Corazón stekkur beint í fyrsta sæti Billboard-listans. Prince fær BET-verðlaun og kemur auk þess fram á fjölmörgum hátíðarathöfnum.

Sérvitringur sem bankaði upp á hjá fólki

Líkt og svo margir aðrir snillingar var Prince af mörgum sagður töluvert mikill sérvitringur. Af honum fóru alls kyns sögur. Margar þeirra eru dagsannar þó að þær séu mögulega færðar í stílinn, en þannig er það nú líklega oft með margar góðar sögur.

Prince var mikill körfuboltaaðdáandi, svo mikill að hann horfði á úrslitaleik í NBA-deildinni á sama tíma og hann spilaði á tónleikum í Montreal.

Sjónvarpi var stillt upp við hliðina á sviðinu og hann fylgdist með leiknum á meðan hann spilaði gítarsóló. Stúlka var fengin til að halda á spjaldi með stöðunni með reglulegu millibili svo hann gæti fylgst betur með. Tónleikaupplifun gesta hefur vafalítið verið áhugaverð.

Prince var í söfnuði Votta Jehóva. Meðlimir safnaðarins þurfa að ganga í hús og boða trú sína og Þrátt fyrir að vera stórstjarna var Prince þar engin undantekning þegar kom að því.

Sjálfur sagði hann í viðtali við The New Yorker að fólk væri oft mjög undrandi þegar það opnaði hurðina og sæi Prince mættan fyrir utan hjá sér enda getur maður rétt ímyndað sér hvernig manni yrði við.

Grínistinn Dave Chappelle bjó til frægan skets þar sem Charlie Murphy, bróðir Eddie Murphy, spilaði körfubolta við Prince og vini hans. Sagan í sketsinum er víst dagsönn og ekki nóg með það heldur notaði Prince mynd af Dave Chappelle í Prince-gervinu sínu framan á smáskífunni Breakfast Can Wait. Áhugasamir geta horft á sketsinn hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Við erum ekki hætt að hlusta á Prince

Ekkert hefur fengist staðfest um dánarorsök tónlistarmannsins Prince, sem lést í gær. Aðdáandi tónlistarmannsins segir það huggun að eftir hann liggi mikið magn af óútgefnu efni.

Af hverju eru svona margar stórstjörnur að deyja?

Nú þegar er byrjað að tala um árið 2016 sem dökkt ár í sögu skemmtanaiðnaðarins en þónokkrar stjörnur hafa þegar horfið yfir móðuna miklu. Hvað er eiginlega í gangi?

Bestu tískuaugnablik Prince

Tónlistarmaðurinn átti mörg ógleymanleg tískuaugnablik og var með sterkan persónulegan stíl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×