Erlent

Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp

visir/youtube/twitter
Eins er saknað eftir að flugeldaverksmiðja í Staffordskíri á Englandi sprakk í loft upp í gærkvöldi.

Tveir eru alvarlega slasaðir á sjúkrahúsi tveir aðrir slösuðust minna en gríðarlegur eldsvoði braust út og tók það fimmtíu slökkviliðsmenn nokkra klukkutíma að ná tökum á honum.

Óttast er að hinn týndi sé látinn en ekki hefur enn verið talið óhætt að leita í rústum byggingarinnar. Lögregla rannssakar nú hvað varð til þess að sprengingin varð.

Hér að neðan má sjá myndband frá atvikinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×