Tónlist

Flugeldasýning á Hlíðarenda

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Snæbjörn Ragnarsson og félagar hans í Skálmöld ætla að rokka feitt.
Snæbjörn Ragnarsson og félagar hans í Skálmöld ætla að rokka feitt. Vísir/Stefán
„Nú á að kýla á þetta, við erum allir svo reiðir yfir því að þetta gekk ekki upp að við höfum ákveðið að snúa bökum saman og kýla á þetta,“ segir Snæbjörn Ragnarsson bassaleikari Skálmaldar en nokkrar af vinsælustu rokksveitum landsins sameinast á stórtónleikum í Vodafonehöllinni í september en tónleikarnir kallast Rokkjötnar 2014.

Tónleikar undir sömu yfirskrift fóru fram árið 2012 og vöktu mikla lukku en því miður gekk ekki að halda tónleikana í fyrra.

„Það er ekkert launungarmál að til þess að svona dæmi gangi upp verðum við að leggja til þrotlausa vinnu og í framhaldinu treysta á alla mögulega innkomu til þess að ná endum saman,“ segir Snæbjörn en hann lofar rosalegum tónleikum.

„Við höfum pantað flottasta hljóðkerfi landsins, öll ljós landsins og svo verður flugeldsýning, við erum ekki að spila þetta seif en er ekkert rokk í því að gera hlutina seif,“ segir Snæbjörn og hlær.

Hljómsveitin Brain Police kemur fram á tónleikunum.Vísir/Vilhelm
Tónleikarnir sem fram fara 27. september, hefjast klukkan 15.45, er það ekki fullsnemmt fyrir þungarokk?

„Þetta er svo mikil og löng veisla að við verðum að byrja snemma, við leyfum líka öllum að koma, það er að segja ef að krakkar eru í fylgd með forráðamönnum,“ segir Snæbjörn.

Spurður út í hvort að rokksveitirnar ætli að rokka saman á sviðinu, segir Snæbjörn það geta verið. „Menn hafa pískrað um það í sitt í hvoru horninu um að ákveðin bönd spili saman. Það er samt komin pínu kappsemi í sveitirnar, menn vilja vera bestir og flottastir, þetta verður smá rokkkeppni.“

Miðasala á tónleikana hefst á þriðjudaginn á midi.is.

Á tónleikunum koma fram:

Skálmöld

DIMMA

SÓLSTAFIR

Brain Police

Beneath

Strigaskór nr. 42

In Memoriam

Melrakkar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×