Sport

Floyd má hafa samband er hann lærir að lesa og reikna

Ronda hlær alla leið í bankann þessa dagana.
Ronda hlær alla leið í bankann þessa dagana. vísir/getty
UFC-bardagakonan Ronda Rousey er ekki hætt að láta boxarann Floyd Mayweather heyra það.

Hún lét hafa eftir sér á dögunum að hún myndi hafa betur í slag gegn Mayweather þar sem væru engar reglur.

Mayweather svaraði henni á þann veg að hún mætti hafa samband er hún halaði inn 300 milljónum dollara á einu kvöldi.

„Þetta voru áhugaverð ummæli. Ég er búinn að reikna þetta út miðað við tölurnar úr mínum síðasta bardaga þá er ég launahæsti bardagamaður UFC og ég er kona," sagði Rousey.

„Ég held að ég sé með tvisvar eða þrisvar sinnum hærri laun en hann á hverja sekúndu. Þannig að þegar hann lærir að lesa og reikna þá má hann hafa samband," bætti Ronda við grjóthörð.

Mayweather fékk 102 þúsund dollara fyrir hverja sekúndu í bardaga sínum gegn Manny Pacquiao.

Ef Ronda á að vera með tvisvar eða þrisvar sinnum meira í sínum síðasta bardaga, sem stóð yfir í 34 sekúndur, þá á hún að hafa fengið á milli 7 og 10 milljónir dollara fyrir þann bardaga.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×