MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ NÝJAST 08:00

Hver þremillinn! Öskjuhlíðin nýtt sem Sorpa

FRÉTTIR

Flestir strandblakarar í góðu formi

Fréttablaðið Lífið 13. júní 2012 06:00
Karl segir mikið breytast í heimi strandblakara þegar opnaðir verða tveir innivellir í Sporthúsinu næsta vetur.
Karl segir mikið breytast í heimi strandblakara þegar opnaðir verða tveir innivellir í Sporthúsinu næsta vetur. FRETTABLADID/ERNIR

Ólympíuíþróttin strandblak hefur rutt sér til rúms á Íslandi á undanförnum árum og tóku alls sextíu þátt í síðasta móti Blaksambands Íslands. Von er á fyrstu innivöllunum næsta vetur sem mun opna nýjar dyr fyrir strandblökurum.

heilsa „Strandblak er mjög líkamlega erfið íþrótt, enda eru flestir strandblakarar í mjög góðu formi,“ segir Karl Sigurðsson, landsliðsþjálfari karla, kvenna og unglinga í strandblaki.

Hann segir mikinn mun vera á strandblaki og inniblaki. „Í strandblaki er keppt í tveggja manna liðum en í sex manna liðum í inniblaki, samt er völlurinn af svipaðri stærð og netið í sömu hæð,“ segir hann og bætir við að sandurinn breyti leiknum líka gríðarlega og geri hann erfiðari. „Fólk getur spilað inniblakleiki í upp í tvo og hálfan tíma en fæstir standa lengur en í klukkutíma í strandblaki,“ segir hann. Strandblak er stundað um allan heim en þar sem það er útiíþrótt setur veðrið að sjálfsögðu stórt strik í reikninginn. Það eru því stórtíðindi í heimi strandblakara að opnaðir verða tveir innivellir í Sporthúsinu næsta vetur. „Hingað til höfum við bara getað æft í þrjá mánuði á ári en með tilkomu þessara valla verður þetta að heilsársíþrótt. Það verður alveg geðveikt,“ segir Karl. Nú þegar er 31 völlur á landinu og segir Karl þeim fara ört fjölgandi, hann viti um sex velli sem séu á teikniborðinu eða í smíðum núna.

Aðspurður segir Karl strandblak hafa náð vinsældum hérlendis upp úr 2004. „Þá voru settir upp strandblakvellir í Fagralundi og upp frá því hófst æðið hérlendis. Fyrsta Íslandsmótið var svo haldið þá um haustið,“ segir hann. Síðan 2004 hafa verið haldin Íslandsmót á hverju hausti og nú er Blaksamband Íslands farið að standa fyrir stigamótaröð sem er í gangi allt sumarið. Fyrsta mótið í þeirri röð var um síðustu helgi og voru þar þrjátíu lið mætt til leiks, eða sextíu þátttakendur.

Karl er, eins og áður segir, landsliðsþjálfari í strandblaki en íslenskt landslið hefur keppt á smáþjóðaleikunum frá árinu 2005. „Besti árangurinn okkar var í Mónakó árið 2007 en þá lentum við í þriðja sæti,“ segir hann en átta þjóðir eru gjaldgengar til að taka þátt á leikunum sem haldnir eru annað hvert ár.tinnaros@frettabladid.is


Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Lífið 19. júní 2013 07:00

Kate Moss nakin í Playboy

Kate Moss ætlar að fagna fertugsafmæli sínu með nektarmyndatöku í tímaritinu Playboy. Meira
Lífið 18. júní 2013 18:00

Íslenskur ljósmyndari myndar fyrir breskan fatahönnuð

Kári Sverrisson ljósmyndari lauk nýlega við myndatöku fyrir tvö bresk fatamerki; Liquorish og Rock Kandy. Rock Kandy er selt í verslunarkeðjunni New Look í Bretlandi en Liquorish er þekkt fatamerki o... Meira
Lífið 18. júní 2013 17:00

Mætti samviskusamlega upp á geðdeild

Hin brosmilda og hláturglaða Bryndís Ásmundsdóttir hefur svo sannarlega slegið í gegn bæði með söng sínum og leik hér á landi enda óhætt að segja að hún búi yfir vandfundnum krafti og ótrúlegri útgeis... Meira
Lífið 18. júní 2013 14:45

Lét sérsauma á sig brúðarkjólinn

"Ég pantaði kjólinn frá Kína. Ég lét bara sauma hann á mig og er ótrúlega ánægð með hann. Sérstaklega þar sem litli kúturinn okkar er ekki nema 4 mánaða gamall en ég valdi mér hann svona hlýralausan s... Meira
Lífið 18. júní 2013 13:00

Fyrsta myndin af litlu stúlkunni

Leikarinn Channing Tatum setti mynd af dóttur sinni Everly á Instagram um helgina en þetta er fyrsta myndin sem hann birtir af litlu hnátunni. Meira
Lífið 18. júní 2013 12:00

Setur húsið á sölu eftir aldarfjórðung

Stórleikarinn Tom Hanks er búinn að láta glæsihýsi sitt í Los Angeles á sölu en hann hefur búið þar með eiginkonu sinni Ritu Wilson síðan þau giftu sig árið 1988, eða í 25 ár. Meira
Lífið 18. júní 2013 11:30

Gillz vinsælli en Páll Óskar

"Stemningin var rosaleg. Margir sem mættu í hlýrabolum og allir sem mættu skemmtu sér konunglega," segir Egill Gillz Einarsson. Meira
Lífið 18. júní 2013 11:00

Einkennisbúningur ofurstjarna

Tvennt eiga þær Gwen Stefani og Rihanna sameiginlegt – þær eru báðar sannkallaðar ofurstjörnur og tískugúrúar. Meira
Lífið 18. júní 2013 10:00

Ömmubarnið mitt er gullfallegt

Kris Jenner, móðir raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian, ljómaði á Daytime Emmy-verðlaunahátíðinni á sunnudag, aðeins tveimur dögum eftir að Kim eignaðist sitt fyrsta barn, litla hnátu. Meira
Lífið 18. júní 2013 09:00

Má ekki kyssa synina fyrir framan vinina

Söngkonan Britney Spears frumflutti nýja lagið sitt Ooh La La í útvarpsþætti Ryan Seacrest í gær og opnaði sig líka um samband sitt við synina Sean og Jaden sem hún á með fyrrverandi eiginmanni sínum,... Meira
Lífið 18. júní 2013 21:30

Foreldrarnir skilja

Leikkonan Miley Cyrus lýsir gremju sinni á Twitter Meira
Lífið 18. júní 2013 20:00

Nigella Lawson farin frá eiginmanninum

Nigella Lawson flutti út frá Charles Saatchi eftir að hann beitti hana ofbeldi á veitingastað. Myndir náðust af atvikinu og hafa þær vakið hörð viðbrögð. Meira
Lífið 18. júní 2013 16:46

Ljósmyndari varð fyrir bíl Biebers

Justin Bieber enn í vandræðum. Meira
Lífið 18. júní 2013 13:37

Á morfíni á brúðkaupsafmælinu

"Ég var bara á æfingu og fékk svona heiftarlegt tak í bakið," segir Sigmar Vilhjálmsson, annar eiganda Hamborgarafabrikunnar. Meira
Lífið 18. júní 2013 12:00

Kveðjuhóf hjá Hemma og Valda

Nýlenduvöruverzlun Hemma og Valda var lokað fyrir fullt og allt um nýliðna helgi. Á föstudaginn buðu aðstandendur Hemma og Valda vinum og velunnurum staðarins í lokapartí þar sem boðið var upp á fjölb... Meira
Lífið 18. júní 2013 12:00

Kim og Kanye orðnir foreldrar

Kim Kardashian eignaðist stúlku á laugardaginn með rapparanum Kanye West. Meira
Lífið 18. júní 2013 10:00

Kanadabúar með tónleika

Kanadísku tónlistarmennirnir Eamon McGrath og Lake Forest spila á Bar 11 í kvöld. Meira
Lífið 18. júní 2013 09:00

Blogga um áhugaverð heimili unga fólksins

"Okkur langaði að bæta bloggi á borð við þetta inn í flóruna þar sem venjuleg heimili eru í aðalhlutverki," segir Gyða Lóa Ólafsdóttir mannfræðingur. Meira
Lífið 18. júní 2013 08:00

Halda hraðstefnumót á Harlem

"Þetta verður óvenjulegt, reykvískt "speed dating," segir Kristín Helga Ríkharðsdóttir, barþjónn á Harlem Bar við Tryggvagötu. Meira
Lífið 18. júní 2013 07:00

Upplifa sig sem loftfimleikamenn

"Þetta er græja sem gefur fólki tækifæri til að upplifa sig nánast sem loftfimleikamenn," segir Örn Þór Halldórsson, sem ætlar að kynna teygjuhopp fyrir Íslendingum í sumar. Meira
Lífið 17. júní 2013 13:00

Bannað að fara í ljós

Glamúrfyrirsætan Katie Price er bálreið út í ónefnda sólbaðsstofu í Lundúnum sem leyfði henni ekki að fara í ljós vegna þess að hún er ólétt. Meira
Lífið 17. júní 2013 12:00

Bilaðist þegar hún sá prinsana

Ung stúlka varð heldur betur glöð þegar hún rakst á prinsana Vilhjálm og Harry á pólómóti í Gloucestershire á Englandi í gær. Meira
Lífið 17. júní 2013 11:00

Ég elskaði skrýtna, slappa magann minn

Söng- og leikkonan Jennifer Lopez þyngdist um 23 kíló þegar hún gekk með tvíburana Max og Emme sem nú eru orðnir fimm ára. Meira
Lífið 17. júní 2013 10:00

Kaupir milljarðahús í stjörnuhverfi

Söngkonan Adele og hennar heittelskaði, athafnamaðurinn Simon Konecki, eru búin að kaupa sér glæsihús í Kensington-hverfinu í Vestur-London. Meira
Lífið 17. júní 2013 09:00

Minnist látins föður

Þúsundþjalasmiðurinn Whitney Port minnist látins föður síns í viðtali við Us Weekly en hann lést eftir baráttu við nýrnakrabbamein í mars á þessu ári. Meira

Tarot

  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Lífið - Yfir / Lífið / Flestir strandblakarar í góðu formi
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000