Lífið

Flestir eru að lesa ranga stjörnuspá

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Talið er að 86 prósent lesi ranga stjörnuspá.
Talið er að 86 prósent lesi ranga stjörnuspá.
Talið er að 86 prósent fólks telji sig vera í öðru stjörnumerki en það er í með réttu. Ástæðan fyrir þessu er að staða stjarnanna gagnvart jörðinni hefur breyst. Þetta kemur fram í umfjöllun BBC og Independent.

Á vef BBC má sjá í hvaða stjörnumerki maður er í, í raun og veru.

Listinn er eftirfarandi:



Steingeit
- 21. janúar til 16. febrúar



Vatnsberi - 17. febrúar til 12. mars

Fiskar - 13. mars til 18. apríl

Hrútur - 19. apríl til 14. maí

Naut - 15. maí til 21. júní

Tvíburi - 22. júní til 20. júlí

Krabbi - 21. júlí til 10. ágúst

Ljón - 11. ágúst til 16. september

Meyja - 17. september til 31. október

Vog - 1. nóvember til 23. nóvember

Sporðdreki - 24. nóvember til 29. nóvember

Naðurvaldi - 30. nóvember til 18. desember

Bogmaður - 19. desember til 20. janúar

Á vef BBC er einnig sagt frá þrettánda stjörnumerkinu, sem er án efa það óþekktasta af stjörnumerkjunum. Merkið er kallað Naðurvaldi. Á stjörnufræðivefnum segir þetta um Naðurvalda:

„Dýrahringurinn eins og hann birtist okkur í stjörnuspám er ekki allur þar sem hann er séður. Líklegt er að þeir lesendum sem eiga afmæli milli 29. nóvember og 17. desember séu alls ekki í því stjörnumerki sem almennt er haldið fram.

Þann 29. nóvember gengur sólin inn í stjörnumerkið Naðurvalda sem er 13. stjörnumerki dýrahringsins. Þótt stjörnumerkin sjáist ekki að degi til er samt hægt að reikna út hvar sólin er stödd á himninum með aðstoð stjörnukorta. Það gerist svo einstaka sinnum að allir fá tækifæri til að sannreyna í hvaða stjörnumerki sólin er þegar tunglið gengur fyrir sólskífuna í almyrkva á sólu og myrkur skellur á um miðjan dag. Ptólmæos áttaði sig á þessu strax á 2. öld e.Kr. í riti sínu Almagest. Þar skráir hann 29 stjörnur í Naðurvalda sem flestar eru norðan sólbaugsins (sú leið sem sólin gengur um himinninn) en fjórar þeirra sunnan hans. Naðurvaldi er eina stjörnumerki dýrahringsins sem hefur ekkert tákn og er aldrei tekið með í stjörnuspám.“

Á vef breska ríkissjónvarpsins kemur fram að menn telji að þrettánda stjörnumerkinu hafi verið haldið úr dýrahringnum svokallaða, að stjörnuspekingar fyrr á öldum hafi viljað búa til hring með fjölda dýra sem talan 360 gengi auðveldlega upp í. Á vefnum má finna í hvaða stjörnumerki maður er í raun og veru í.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×