Fjörutíu og þrjú kauptilboð bárust í eignasöfn Íbúðalánasjóðs Sæunn Gísladóttir skrifar 4. febrúar 2016 13:43 Íbúðalánasjóður selur íbúðir um land allt. Vísir/Vilhelm
Alls bárust 43 kauptilboð í eignasöfn Íbúðalánasjóðs sem boðin voru til sölu í opnu söluferli fyrir áramót. Tilboð bárust í öll 15 eignasöfnin sem auglýst voru, segir í tilkynningu. Um er að ræða þriðjung þeirra íbúða sem nú eru í eigu sjóðsins eða 504 íbúðir alls. Eignasöfnin eru misjöfn að stærð og gerð. Samsetning eigna í hverju safni miðast við að hagkvæmt geti verið að reka um þær leigufélög og eru eignir í hverju þeirra að jafnaði í sama byggðarlagi. Ákveðið var að hafa hvert eignasafn hóflegt að stærð til þess að það væri á færi fleiri fjárfesta að bjóða í þau. Sala eignanna er í takti við markmið Íbúðalánasjóðs um að selja meirihluta fasteigna sjóðsins á þessu ári. Vonast sjóðurinn til að stuðla um leið að auknu framboði af íbúðarhúsnæði víða um land. Sjá einnig: Íbúðalánasjóður selur 504 fasteignir um land allt Verkefnisstjórn söluferlisins mun nú fara yfir tilboðin og kanna hvort þau séu öll í samræmi við skilmála söluferlisins. Í kjölfarið mun hún stilla upp samanburði á tilboðunum til að hægt sé að meta hvaða tilboð telst hagstæðast. Þeim fjárfestum sem gerðu hagstæðustu tilboðin verður send tilkynning þess efnis á mánudag. Fjárfestinum sem á hagstæðasta tilboðið ber að greiða 1% kaupverðsins ekki síðar en 11. febrúar.
Mest lesið Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Síðasti bíllinn fylltur á Ægisíðu Viðskipti innlent Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Viðskipti innlent Ofurtollarnir lækkaðir tímabundið Viðskipti erlent Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Samstarf Ríkið eignast hlut í Norwegian Viðskipti erlent Svandís tekur við Fastus lausnum Viðskipti innlent Hrósæfingar fyrir vinnustaði, gryfjur og góð ráð Atvinnulíf Fleiri fréttir Síðasti bíllinn fylltur á Ægisíðu Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Sjóvá fundaði með PPP en afþakkaði þjónustu Svandís tekur við Fastus lausnum Ráðinn framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Áhrif tolla Trumps væru innan við eitt prósent Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Sólon lokað vegna gjaldþrots Slær bjartari tón þegar kemur að verðbólgunni AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Sveinn verður viðskiptastjóri hjá Styrkás Ráðin hagfræðingur SVÞ Sjá meira
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent