Fótbolti

Fjólublátt þema hjá Barcelona og Real Madrid

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
mynd/twitter-síður barcelona og real madrid
Spænsku stórliðin og erkióvinirnir Barcelona og Real Madrid kynntu bæði nýja varabúninga í dag.

Þrátt fyrir fjandskapinn á milli þessara tveggja risa verða varabúningar þeirra á næsta tímabili eins á litinn - fjólubláir.

Barcelona leikur áfram í búningum frá Nike eins og Katalóníuliðið hefur gert frá árinu 1998.

Varabúningar Börsunga hafa verið mjög litríkir undanfarin ár en þetta er í fyrsta sinn sem þeir eru fjólubláir.

Adidas framleiðir búninga Real Madrid líkt og undanfarin 18 ár. Varabúningarnir hafa áður verið fjólubláir, síðast tímabilið 2010-11.

Barcelona og Real Madrid börðumst um Spánarmeistaratitilinn fram í síðustu umferð á síðasta tímabili. Börsungar höfðu að lokum betur, fengu 91 stig, einu stigi meira en Real Madrid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×