Erlent

Fjögurra manna fjölskylda fannst látin á Gíbraltar

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Fjölskyldan fannst í íbúð í Gíbraltar.
Fjölskyldan fannst í íbúð í Gíbraltar. vísir/getty
Fjögurra manna fjölskylda, þar af tvö börn, fannst látin í íbúð á Gíbraltar um hádegisbil í dag. Talið er að þau hafi látist af völdum hnífsstungu.

Spænskir fjölmiðlar hafa greint frá því að hjónin hafi verið búsett á Spáni en nýlega flutt til Gíbraltar. Saman hafi þau átt sex vikna stúlku og konan fjögurra ára dóttur úr fyrra sambandi.

Maðurinn var 31 árs frá Bretlandi. Konan var 37 ára frá Spáni.

Litlar upplýsingar er að fá um málið að svo stöddu en svæðinu umhverfis íbúðina hefur verið lokað og eru rannsakendur á vettvangi. Fréttin verður uppfærð eftir því sem frekari upplýsingar berast. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×