Innlent

Fjögurra bíla árekstur á Hringbraut

Birgir Olgeirsson skrifar
Tveir voru fluttir á slysadeild en enginn slasaðist alvarlega í þessu umferðaróhappi.
Tveir voru fluttir á slysadeild en enginn slasaðist alvarlega í þessu umferðaróhappi. Vísir/Eyþór
Fjögurra bíla árekstur varð á gatnamótum Hringbrautar og Njarðargötu á öðrum tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins slasaðist enginn alvarlega en tveir voru þó fluttir á sjúkrahús. Einhverjar tafir voru vegna slyssins en stóðu þó ekki lengi yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×