Fjármálaöskuhaugar

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 03. september 2010 09:50
Fjármálaöskuhaugar
Elísabet Brekkan skrifar:
Leikhús ***
Nígeríusvindlið
16 elskendur

16 elskendur spruttu fram á sviðið í Kassanum þó þeir væru bara tíu. Það var kannski fyrsta svindlið. Þjóðleikhúsið hóf leikárið með því að bjóða upp á blandaðan hóp ungra áhugasamra leikara sem sjálfir settu saman hraðnámskeið í að græða á vitleysingum og beita þá brögðum sem þegar eru þekkt meðal svikahrappa.

Nígeríusvindlið gerir hópurinn að sínu yrkisefni og heimfærir upp á Ísland. Að leysa öll þau vandamál sem nú hafa upp komið með svikum á svik ofan, er það sem þau sjá fyrir sér.

Hópurinn bregður sér í ýmis gervi og það er bongotrommustuð þó þau veltist um á öskuhaugum þriðja heimsins í plastpokahrúgum sem mynda tvö fjöll á sviðinu.

Að fá fólk til þess að borga inn á einhverja reikninga einhvers staðar í von um fúlgur á móti er jú fyrirbæri sem allflestir hafa lent í. Slíkar fúlgur komu fljúgandi í Nígeríusvindlinu, inn á reikninga hjá útsmognum (eða sjálfbjarga) aðilum sem buðu vesalingum í hinni heimsku Evrópu að ættleiða bóndagarm sem orðið hafði hvað verst úti í gosinu undir Eyjafjöllum.

Hugmyndirnar voru margar hverjar brilljant og hlátrasköllin létu ekki á sér standa. Þau unnu verkið eins og dansverk og stundum með tækni kórsins. Margt var smart unnið en eins og oft vill verða þegar enginn einn er við stjórnvölinn voru sum atriði hreinlega of matreidd oní mannskapinn eins og þegar þau halda hvert sína ræðuna á námskeiði sem áhorfendum var boðið á; í stað þess að gera það kannski einu sinni eða tvisvar gerðu þau það sex sinnum.

Frammistaða leikaranna var jöfn þó svo að þau Hlynur Páll og Aðalbjörg Þóra hefðu leikið einna best á salinn. Það verður athyglisvert að sjá hverjum þau vefja inn í leikinn síðar en á fyrstu sýningunni voru það Stefán Jónsson leikstjóri og Þórarinn Eldjárn skáld sem birtust og urðu hluti af verkinu fyrir svo utan að áherslupenninn Vilhjálmur Bjarnason bregður upp miklum mafíósahatti og vitnar í Stein Steinarr um draum sérhvers manns.

Þetta var á köflum mjög fyndið og hugmyndin að gera eymd Afríku og allra þriðjaheimsvesalinga að okkar stórgróða er svo sem ekkert ný. Draumurinn rætist; við verðum fjármálaöskuhaugur. Hvað erum við ekki búin að gera mikið grín að vitlausum Ameríkönum sem ættleiða hvali? María þýska Volfendorf eða hvað hún nú hét sem ættleiddi íslenskan bónda var líklega sú sem kitlaði hláturtaugar áhorfenda hvað mest.

Þetta var ágætt en hefði mátt vinna betur og með aðeins meiri auðmýkt gagnvart efninu. Öskur og gassagangur verður því miður oft bara öskur og gassagangur. Hugmyndaríkt verk og á köflum bráðfyndið en hefði mátt vinna betur.



Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Gagnrýni 27. mar. 2012 12:00

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að k...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Fjármálaöskuhaugar