Íslenski boltinn

Finnur Orri búinn að semja við FH

Finnur Orri er kominn í FH.
Finnur Orri er kominn í FH. vísir/stefán
FH-ingar fengu flottan liðsstyrk í dag þegar Finnur Orri Margeirsson skrifaði undir samning við félagið.

Á síðunni FH-ingar.net er staðfest að Finnur Orri hafi skrifað undir þriggja ára samning við Hafnarfjarðarfélagið.

Finnur Orri kemur til FH frá Blikum þar sem hann hefur verið fyrirliði og í lykilhlutverki undanfarin ár.

Þrátt fyrir ungan aldur er hann búinn að spila 163 leiki í meistaraflokki.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×