Körfubolti

Finnur: Pavel verður klár í næsta leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pavel á ferðinni.
Pavel á ferðinni. vísir/valli
Pavel Ermolinskij varð fyrir bakslagi um helgina og hvíldi í kvöld.

KR sópaði Grindavík úr leik í 8-liða úrslitum Domino's-deildar karla eftir öruggan sigur í kvöld. Það gerði liðið þrátt fyrir að leikstjórnandinn Pavel Ermolinskij hafi ekki verið með.

Pavel er enn að glíma við meiðsli eftir að hann reif lærvöðva í bikarúrslitaleiknum gegn Stjörnunni.

„Fyrst við vorum 2-0 yfir ákváðum við að hvíla hann í kvöld. Nú fáum við hvíld í nokkra daga og ég held að hún komi sér mjög vel fyrir Pavel,“ sagði Finnur Freyr sem var ánægður með sína menn.

„Að vinna 3-0 og hafa Pavel í bara 20 mínútur í allri rimmunni er bara kjaftæði.“

Viðtalið allt og nánari umfjöllun um leikinn má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×