Fótbolti

Fimm Íslendingar í byrjunarliði

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Daði Böðvarsson spilaði allan leikinn fyrir Viking í dag.
Jón Daði Böðvarsson spilaði allan leikinn fyrir Viking í dag. Heimasíða Viking
Sogndal og Viking gerðu markalaust jafntefli í fyrsta leik dagsins í norsku úrvalsdeildinni.

Allir fimm Íslendingarnar í herbúðum Viking voru byrjunarliðinu í dag. Sverrir Ingi Ingason, Indriði Sigurðsson og Jón Daði Böðvarsson spiluðu allan leikinn en þeir Steinþór Freyr Þorsteinsson og Björn Daníel Sverrisson voru teknir af velli í seinni hálfleik.

Viking situr í 6. sæti með 22 stig, en Sogndal í því 8. með 19 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×