Lífið

Fimm hlutir sem þú mátt aldrei segja við konu

Stefán Árni Pálsson skrifar
vísir/getty
Daniel Euan Henderson þekkir konur greinilega mjög vel. Hann var í það minnsta að deila myndbandi þar sem hann fer í gegnum þá hluti sem þú mátt aldrei segja við konur.

Sumir hlutir eru nokkuð augljósir en aðrir hlutir gætu menn eða konur óvart misst út úr sér.

Henderson heldur úti nokkuð vinsælli Facebook-síðu þar sem hann deildir allskonar efni. Hér að neðan má lesa þau atriði sem drengurinn kemur inn á:

1. Aldrei segja við konu að hún þurfi nú aðeins að slaka á.

2. Aldrei segja hluti eins og; „Ég skil, þú hlýtur að vera á blæðingum“

3. Aldrei segja; „Varst þú ekki búin að borða?“

4. Aldrei tala um þyngd hennar, þó það sé hrós.

5. Aldrei bera saman eina konu við aðra konu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×