Sport

Fimm ára bið Liverpool loks á enda í kvöld

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Brendan Rodgers vill byrja leiktíðina í Meistaradeild Evrópu með sigri.
Brendan Rodgers vill byrja leiktíðina í Meistaradeild Evrópu með sigri. vísir/getty
„Ég er mjög spenntur. Fimm ár er langur tími. Við eigum skilið að vera með í þessari keppni,“ sagði Brendan Rodgers, stjóri Liverpool, sem leikur í kvöld sinn fyrsta leik í Meistaradeild Evrópu í fimm ár.

Liðið mætir þá búlgarska liðinu Ludogorets á heimavelli sínum, Anfield. „Við viljum komast upp úr okkar riðli en munum engu að síður taka bara einn leik fyrir í einu. Fyrsta markmið okkar er að standa okkur vel,“ bætti Rodgers við.

Liverpool-menn eru þó enn að sleikja sárin eftir tap fyrir Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni um helgina en Rodgers segir að leikur kvöldsins sé kjörið tækifæri til að komast aftur á beinu brautina.

„Við vorum með mikla yfirburði gegn Aston Villa en úrslitin voru ekki okkur að skapi. En við verðum bara að halda áfram og einbeitum okkur nú að næsta leik.“

Liverpool þarf að byrja vel í kvöld en búlgarska liðið er fyrirfram talið það lakasta í riðlinum. Rodgers og lærisveina hans bíður erfiðara verkefni gegn Real Madrid og Basel frá Sviss. Rodgers hefur skoðað búlgarska liðið vel og á von á að gestirnir muni sækja í kvöld.

„Þetta er topplið í Búlgaríu og ég veit að leikurinn verður erfiður. Þeir spila 4-2-3-1 og eru með bakverði sem sækja upp kantana. Þetta er lið sem vill sækja,“ sagði Rodgers sem bætti því við að varnarmaðurinn Martin Skrtel mundi missa af leiknum vegna meiðsla.

Meðal annarra leikja í kvöld má nefna að Arsenal á erfiðan útileik fyrir höndum í D-riðli gegn þýska liðinu Dortmund á Signal Iduna-leikvanginum.

Allir leikir kvöldsins hefjast klukkan 18.45 en upphitun hefst á Stöð 2 Sport klukkan 18.00. Meistaramörkin hefjast svo klukkan 20.45.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×