Körfubolti

Ferðast með Uber undir dulnefni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Curry er alltaf í stuði.
Curry er alltaf í stuði. vísir/getty
Besti leikmaður NBA-deildarinnar, Steph Curry, ferðast mikið með Uber-leigubílunum en gerir það þó undir dulnefni.

Er hann sest svo upp í bílinn fer það nú ekki fram hjá bílstjórunum hver sé mættur. Þá er talað um körfubolta.

„Þessar ferðir eru ótrúlegar. Þessir strákar eru rosalegir aðdáendur og segja mér frá öllum sem þeir halda upp á. Þetta er mjög skemmtilegt. Ekki síst er þeir fatta hver ég er en ég panta bílana undir dulnefni,“ sagði Curry.

Hann hefur einstaklega gaman af viðbrögðum bílstjóranna er þeir snúa sér við og sjá hver sé mættur í bilinn.

„Ég fer venjulega að hlæja að viðbrögðunum. Þeir verða svo rosalega hissa.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×