Fótbolti

Fara stoltir frá Tyrklandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Aron Einar Gunnarsson var kominn aftur í liðið eftir að taka út leikbann.
Aron Einar Gunnarsson var kominn aftur í liðið eftir að taka út leikbann. vísir/getty
„Það var skrýtin stemning inni í klefanum eftir leikinn,“ sagði Lars Lagerbäck, annar landsliðsþjálfara Íslands, eftir tapið gegn Tyrklandi í gær. Að lokinni undankeppninni stendur upp úr að Ísland er komið á sitt fyrsta stórmót frá upphafi en leikmenn vildu allir ljúka henni með sigri.

„Tilfinningarnar eru því blendnar, bæði hjá mér og leikmönnunum,“ bætti Lagerbäck við. „Sérstaklega þar sem við spiluðum vel í dag. Ef annað liðið átti skilið að vinna þá vorum það við.“

Selçuk Inan skoraði eina mark leiksins, beint úr aukaspyrnu, á 89. mínútu. Varamaðurinn Gökhan Töre hafði skömmu áður fengið að líta beint rautt spjald eftir ljóta tæklingu á Jón Daða Böðvarsson en einum færri náðu Tyrkir að kreista fram sigur sem fleytti þeim beint á EM í Frakklandi.

Allt ætlaði um koll að keyra þegar Tyrkir skoruðu sigurmarkið sitt og þegar flautað var til leiksloka. Tyrkland tapaði ekki síðustu átta leikjum sínum í undankeppninni og snemma var ljóst að þeir ætluðu sér engu óðslega.

Tyrkir gátu andað léttar þegar Tékkar komust yfir í Hollandi og þar sem að Kasakstan komst yfir í Lettlandi var ljóst að Tyrkir þurftu aðeins eitt mark til að komast á EM.

Jóhann Berg Guðmundsson í loftfimleikum í gær.vísir/getty
Þeir fengu hjálp frá dómurunum sem dæmdu væga aukaspyrnu á Kára Árnason rétt utan teigs en Inan afgreiddi hana mjög vel í netið.

„Það getur verið að Tyrkir hafi fengið meira svigrúm hjá dómaranum eftir rauða spjaldið en eftir stendur að við getum ekki kennt neinum um nema okkur sjálfum,“ sagði Lagerbäck.

„Við fengum tækifæri til að vinna leikinn. Það er því ýmislegt sem við þurfum að bæta í okkar leik. Við þurfum að vera betri þegar við förum til Frakklands.“

Lagerbäck hrósaði sínum mönnum fyrir að framfylgja leikskipulagi þjálfaranna - það eina sem hafi vantað upp á var að nýta færin. En hann segir það dýrmæta reynslu að spilað á þessum velli við þessar aðstæður og fyrir framan 40 þúsund háværa Tyrki.

„Því fleiri leiki eins og þessa sem við fáum, því betra. Tyrkir eru með mjög sterkt lið og leikmenn geta gengið stoltir frá þessum leik þrátt fyrir tapið.“

Samningur Lagerbäck við KSÍ rennur út í sumar en hann útilokar ekkert um framtíðina. „Eins og ég hef áður sagt þá var það alltaf á dagskrá að hætta. En ég segi líka alltaf þá skoða ég málin upp á nýtt þegar þar að kemur. En planið er vissulega að ég hætti og Heimir taki alfarið við.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×