FIMMTUDAGUR 23. MAÍ NÝJAST 09:15

Rússneski milljarðamæringurinn ekki hættur

SPORT

Fanndís tryggði stelpunum sigur á Kína | Mæta Dönum í leik um 5. sætið

Vísir Íslenski boltinn 05. mars 2012 15:08
Fanndís Friðriksdóttir.
Fanndís Friðriksdóttir. MYND/NORDIC PHOTOS/GETTY
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tryggði sér leik um fimmta sætið á Algarve-bikarnum eftir 1-0 sigur á Kína í dag í lokaleik sínum í riðlinum. Fanndís Friðriksdóttir kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið ellefu mínútum fyrir leikslok.

Íslenska liðið, hafði eins og Kína, tapað fyrstu tveimur leikjum sínum á mótinu en mætir nú Danmörku í leik um fimmta sætið á miðvikudaginn. Danir unnu 1-0 sigur á Noregi fyrr í dag og tryggði sér með því þriðja sætið í hinum riðlinum.

Fanndís kom inn á sem varamaður fyrir Gretu Mjöll Samúelsdóttur á 64. mínútu en sigurmarkið skoraði hún á 79. mínútu eftir að hafa fengið stungusendingu frá Hólmfríður Magnúsdóttir. Hólmfríður hefur þar með lagt upp bæði mörk íslenska liðsins á mótinu.

Hér fyrir neðan má sjá textalýsingu frá leiknum.

Leik lokið - Íslensku stelpurnar unnu 1-0 sigur á Kína og tryggðu sér með því þriðja sætið í riðlinum og um leið leik um fimmta sætið á mótinu. Íslenska liðið þurfti sigur til að hafna ofar en Kína og stelpurnar sýndu það á lokakaflanum að þær ætluðu sér í leikinn um fimmta sætið. ísland mætir þar Danmörku á miðvikudaginn.

90. mínúta - Þýskaland vann 4-0 sigur á Svíþjóð í hinum leik riðilsins og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum á móti Japan. Célia Okoyino da Mbabi skoraði þrennu og Alexandra Popp innsiglaði sigurinn undir lokin. Sænsku stelpurnar mæta Bandaríkjunum í leik um þriðja sætið.

79. mínúta - Íslensku stelpurnar komast yfir og ætla að tryggja sér leik við Dani um þriðja sætið í mótinu Varamaðurinn Fanndís Friðriksdóttir skoraði markið. Fanndís skorar af öryggi eftir stungusendingu frá Hólmfríði en tveimur mínútum áður hafði Harpa átt hælspyrnu, eftir hornspyrnu, sem bjargað var á marklínu.

75. mínúta - Liðið sem hafnar í þriðja sæti í A riðli mætir Dönum í leik um 5. sætið en Kína nægir jafntefli til þess að tryggja sér þriðja sætið. Liðin sem hafna í neðstu sætunum í A og B riðli leika við tvær efstu þjóðirnar í C riðli um sæti og eins og er stefnir í það að það verði hlutskipti íslenska liðsins.

68. mínúta - Sigurður Ragnar hefur gert tvær breytingar á stuttum tíma. Fanndís Friðriksdóttir kom inn fyrir Gretu Mjöll á 64. mínútu og fjórum mínútum síðar fór Margrét Lára Viðarsdóttir út og Harpa Þorsteinsdóttir kom inn fyrir hana. Enn heldur tíðindalítið, íslenska liðið fékk 3 hornspyrnu á fjögurra mínútna kafla en þær sköpuðu ekki teljandi hættu.

64. mínúta - Célia Okoyino da Mbabi var að innsigla þrennu sína og svo gott sem tryggja Þjóðverjum sigur á Svíum í hinum leik riðilsins en Þýskaland er 3-0 yfir á móti Svíþjóð þegar tæpur hálftími er eftir.

50. mínúta - Fyrsta breytingin hjá íslenska liðinu. Stjörnukonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir kemur inn á fyrir Rakel Hönnudóttur. Gunnhildur Yrsa kemur inn á miðjuna og Guðný fer aftur í bakvörðinn í stað Rakelar.

Seinni hálfleikurinn er hafinn.

Hálfleikur - Það er markalaust í hálfleik. Á síðustu mínútu hálfleiksins hafnaði boltinn í neti Kínverja eftir hornspyrnu en markið var hinsvegar dæmt af þrátt fyrir mikil mótmæli íslensku leikmannanna. Líklegast að dæmt hafi verið á brot á markverði Kínverja.

40. mínúta - Það er enn markalaust í leiknum en íslenska liðið hefur verið heldur hættulegra í sínum sóknaraðgerðum. Kínverjar hafa fengið aðra hornspyrnu og voru rétt í þessu að gera sína þriðju breytingu í fyrri hálfleiknum þannig að mexíkóski dómarinn bætir líklega nokkrum mínútum við í uppbótartíma.

30. mínúta - Célia Okoyino da Mbabi er í miklu stuði því hún er búin að skora sitt annað mark og þær þýsku eru því komnar í 2-0 á móti Svíþjóð. Leikirnir í B-riðli eru líka búnir. Japan vann Bandaríkin 1-0 og Danmörk vann Noreg 1-0. Japanar spila því til úrslita á mótinu á móti væntanlega Þýskalandi ef ekkert breytst í leik Þjóðverja ig Svía.

26. mínúta - Margrét Lára Viðarsdóttir á skot úr stöngina úr aukaspyrnu utan af kanti. "Skotfyrgjöf" hennar hafnaði í stönginni áður en Kínverjar náðu að bægja hættunni frá. Tækifærin annars af skornum skammti samkvæmt fésbókarsíðu KSÍ en mikil barátta er hinsvegar í leiknum og hafa tvær kínverskar stelpur þurft að yfirgefa völlinn.

25. mínúta - Célia Okoyino da Mbabi var að koma Þýskalandi í 1-0 á móti Svíum með þrumuskalla eftir hornspyrnu. Það er enn markalaust hjá íslensku stelpunum.

22. mínúta - Leikurinn hjá Íslandi og Kína fer rólega af stað og eftir 20 mínútur hafa engin færi litið dagsins. Ein hornspyrna litið dagsins ljós og var hún kínversk.

20. mínúta - Staðan er enn markalaust hjá íslensku stelpunum en heimsmeistarar Japans voru að komast í 1-0 á 83. mínútu á móti Bandaríkjunum í hreinum úrslitaleik um sigurinn í hinum riðlinum. Danir eru að vinna Norðmenn 1-0 en þessir leikir hófust klukkan 14.00.

15. mínúta - Það er enn markalaust hjá íslensku stelpunum alveg eins og í leik Svíþjóðar og Þýskalands sem fer fram á sama tíma. Leikur Svía og Þjóðverja er sýndur beint á Eurosport.

Leikurinn er hafinn á Estádio Municipal de Lagos.

Fyrir leik - Það styttist í leikinn og íslensku stelpurnar eru klárar í slaginn. Aðstæður eru sem fyrr hinar ákjósanlegustu en leikið er á sama velli og gegn Þjóðverjum í fyrsta leik en íslenska liðið tapaði þá naumlega 0-1.

Fyrir leik - Leikur Íslands og Kína hefst klukkan 15.30 og á sama tíma spila Þýskaland og Svíþjóð um sigurinn í riðlinum. Efsta sætið í riðlinum kemur liðinu í úrslitaleikinn á móti annaðhvort Bandaríkjunum eða Japan.

Fyrir leik - Sigurvegari leiksins í dag tryggir sér þriðja sætið í A-riðlinum og þar með sæti í leiknum um fimmta sætið á móti annaðhvort Danmörku eða Noregi. Það lið sem endar í 4. sætið leikur við lið úr neðri hluta keppninnar.

Fyrir leik - Kína er búið að tapa 0-1 í tveimur fyrstu leikjum sínum í Algarvebikarnum. Þýsku stelpurnar skoruðu sigurmark sitt úr vítaspyrnu á 33. mínútu en sigurmark þeirra sænsku kom ekki fyrr en sjö mínútum fyrir leikslok.

Fyrir leik - Sex leikmenn íslenska liðsins hafa verið í byrjunarliðinu í öllum þremur leikjunum en það eru Hallbera Guðný Gísladóttir, Katrín Jónsdóttir, Rakel Hönnudóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir, Dóra María Lárusdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir,

Fyrir leik - Íslensku stelpurnar unnu 2-1 sigur á Kína á Algarve í fyrra. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði þá bæði mörkin eftir að kínverska liðið hafði komist yfir á 21. mínútu. Fyrra mark Margrétar kom beint úr aukaspyrnu en það síðara eftir mikið einstaklingsframtak.

Fyrir leik - Guðbjörg Gunnarsdóttir, Fanndís Friðriksdóttir, Thelma Björk Einarsdóttir og Mist Edvardsdóttir voru allar í byrjunarliðinu á móti Svíum en eru núna á bekknum. Fanndís og Mist voru búnar að byrja tvo fyrstu leikina.

Fyrir leik - Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari gerir alls fjórar breytingar á byrjunarliði sínu frá því í leiknum við Svía á föstudaginn en Greta Mjöll Samúelsdóttir og Þóra Björg Helgadóttir koma inn í byrjunarliðið ásamt systrunum teimur úr Eyjum, Margrét Láru og Elísu.

Fyrir leik - Margrét Lára Viðarsdóttir kemur aftur inn í byrjunarliðið og systir hennar Elísa Viðarsdóttir byrjar sinn fyrsta A-landsleik. Þetta er því í fyrsta sinn sem systurnar úr Eyjum eru saman í byrjunarliði A-landsliðsins og jafnframt í fyrsta sinn sem þær byrja saman alvöru leik.


Byrjunarlið Íslands á móti Kína:

Markvörður: Þóra Björg Helgadóttir

Vinstri bakvörður: Hallbera Guðný Gísladóttir

Miðverðir: Katrín Jónsdóttir fyrirliði og Elísa Viðarsdóttir.

Hægri bakvörður: Rakel Hönnudóttir.

Vinstri kantur: Greta Mjöll Samúelsdóttir

Miðjumenn: Sara Björk Gunnarsdóttir og Guðný Björk Óðinsdóttir

Hægri kantur: Dóra María Lárusdóttir

Sóknarmenn: Margrét Lára Viðarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir



Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Íslenski boltinn 23. maí 2013 06:45

Vítin til vandræða

Vítaskyttur Pepsi-deildarliðanna hafa aðeins skorað úr tveimur af sjö vítaspyrnum sem dæmdar hafa verið í fyrstu fjórum umferðunum í sumar. Þetta er langversta byrjun vítaskyttna síðan deildin varð tó... Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 22:30

Þetta víti er stútfullt af stælum

Leikmönnum Pepsi-deildar karla hefur gengið afar illa að nýta vítaspyrnur sínar í sumar og vítin voru eitt af umræðuefnunum í Pepsimörkunum í gær. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 22:01

Greta Mjöll: Ég fékk bara eitt stykki hnefa í andlitið

Greta Mjöll Samúelsdóttir, fyrirliði Breiðabliks endaði síðan leikinn á móti Selfossi í kvöld á því að vera borin útaf eftir slæmt höfuðhögg. Breiðablik vann leikinn 4-1 og er með fullt hús eftir fjór... Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 16:51

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Selfoss 4-1 | Blikar áfram á sigurbraut

Breiðablik hélt áfram sigurgöngu sinni í Pepsi-deild kvenna í kvöld þegar liðið vann 4-1 sigur á Selfossi á Kópavogsvellinum. Breiðablik hefur unnið fyrstu fjóra leiki sína í sumar og er á toppnum í d... Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 21:55

Hrikaleg mistök hjá Birnu Berg | Myndband

Hinn stórefnilegi markvörður FH, Birna Berg Haraldsdóttir, gerði sig seka um skelfileg mistök í leiknum gegn Aftureldingu í kvöld. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 17:08

Auðvelt hjá FH og Stjörnunni | Podovac skoraði fjögur mörk

FH vann sinn fyrsta sigur í Pepsi-deild kvenna í kvöld er liðið lagði Aftureldingu. Danka Podovac fór á kostum í liði Stjörnunnar gegn HK/Víkingi og skoraði fjögur mörk. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 20:30

Varasamt að ná í 1. deildarkónga

Strákarnir í Pepsimörkunum ræddu muninn á því að spila í 1. deildinni og Pepsi-deildinni í þætti gærkvöldsins. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 16:57

Meistararnir misstu niður tveggja marka forskot

Fyrstu tveimur leikjum kvöldsins í Pepsi-deild kvenna er lokið. Jafntefli var í stórleiknum fyrir norðan en ÍBV vann öruggan sigur á Þrótti. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 16:45

Víðir skoraði flottasta markið í 3. umferð

Eyjamaðurinn Víðir Þorvarðarson skoraði flottasta markið í 3. umferð Pepsi-deildar karla í fótbolta að mati lesenda Vísis en kosið var á milli fimm fallegustu markanna hér inn á Vísi. Lesendur Vísis f... Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 14:30

Markaregn fjórðu umferðar

Tólf mörk voru skoruð í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla en það má sjá þau öll í meðfylgjandi myndbandi. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 09:00

Marksækinn og söngelskur Skagamaður

Hallur Flosason skoraði annað marka ÍA í 2-0 sigri á Fram í gær en ef til vill vita færri að hann er einnig stórefnilegur tónlistarmaður. Meira
Íslenski boltinn 22. maí 2013 06:00

Lærið opnað að aftan

"Hún er með risastóran skurð eftir að lærið var opnað að aftan," sagði landsliðsþjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson um meiðsli Margrétar Láru Viðarsdóttur. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 15:31

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - FH 0-1

Róbert Örn Óskarsson var hetja FH-inga í 1-0 sigri á Blikum í Pepsi deild karla í kvöld. Blikar fengu víti á 89. mínútu og gátu jafnað leikinn en Róbert varði vítið og tryggði gestunum stigin þrjú. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 15:29

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍA - Fram 2-0

Skagamenn fengu sín fyrstu stig í sumar með sigri á Fram, 2-0, í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Páll Gísli Jónsson, markmaður íA, átti stórleik í fyrri hálfleik og bjargaði Skagamönnum oft... Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 15:25

Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: Stjarnan - Valur 1-1

Stjarnan og Valur gerður 1-1 jafntefli í fjórðu umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld en leikurinn fór fram á Samsung-vellinum í Garðabæ. Stjörnumenn gerðu eina mark fyrri hálfleiksins en g... Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 17:30

Feðgin dæmdu í 1. deild kvenna

Bergur Þór Steingrímsson og dóttir hans, Ellen Elísabet, voru aðstoðardómarar á leik í 1. deild kvenna nú um helgina. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 14:54

Þetta er hið versta mál

Fylkismaðurinn Pablo Punyed braut bein í fæti í gær og verður frá keppni næstu átta vikurnar hið minnsta. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 14:30

Neitar að þreyta hafi valdið uppköstunum

Atli Sigurjónsson, leikmaður KR, kastaði upp í viðureign liðsins gegn ÍBV á Hásteinsvelli í gær Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 13:11

Margrét Lára snýr aftur í landsliðið

Sigurður Ragnar Eyjólfsson hefur valið 23 leikmenn í A-landslið kvenna sem mun leika æfingaleik gegn Skotum á Laugardalsvelli þann 1. júní næstkomandi. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 08:00

Ég er með breitt bak

Róbert Örn Óskarsson hefur farið á kostum á milli stanganna hjá Íslandsmeisturum FH í byrjun tímabils. Hafnfirðingar sækja Breiðablik heim í kvöld. Meira
Íslenski boltinn 21. maí 2013 19:00

Miðstöð Boltavaktarinnar | Allir leikir á sama stað

Íþróttavefur Vísis býður lesendum sínum upp á að fylgjast með öllum leikjum kvöldsins í Pepsi-deild karla samtímis. Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 00:01

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - Fylkir 2-2

Keflavík og Fylkir þurftu að skipta með sér stigunum í leik liðanna suður með sjó í 4. umferð Pepsi-deild karla í kvöld. Keflavík spilaði allan síðari hálfleikinn manni færri en bæði lið klúðruðu víta... Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 00:01

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Þór - Víkingur 1-0 | Eitt skot eitt mark

Þór Akureyri náði í sín fyrstu stig á þessari leiktíð eftir 1-0 sigur gegn Víkingi frá Ólafsvík í Pepsi-deild karla í dag. Liðin mættust á Akureyri og höfðu heimamenn betur í heldur bragðdaufum leik. Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 00:01

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - KR 0-2 | Fullt hús hjá KR

KR-ingar héldu sigurgöngu sinni í Pepsi-deild karla í knattspyrnu áfram þegar liðið vann sanngjarnan 2-0 útisigur á ÍBV í Eyjum. Baldur Sigurðsson var enn á ný á skotskónum hjá KR. Meira
Íslenski boltinn 20. maí 2013 16:21

Einar Hjörleifs byrjar | Simmonds á bekknum

ÍBV tekur á móti KR og nýliðar Þórs og Víkings Ólafsvíkur mætast norðan heiða í 4. umferð Pepsi-deildar karla klukkan 17. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Sport / Fótbolti / Íslenski boltinn / Fanndís tryggði stelpunum sigur á Kína | Mæta Dönum í leik um 5. sætið
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000