Fanndís braut ísinn fyrir Ísland á EM | Fyrsta mark Íslands í fimm leikjum Kristinn Páll Teitsson skrifar 22. júlí 2017 16:39 Fanndís fagnar hér ásamt liðsfélögum sínum fyrsta marki leiksins. Vísir/Getty
Fanndís Friðriksdóttir kom Íslandi yfir með snyrtilegu skoti nú rétt í þessu gegn Sviss á EM í Hollandi en þetta var fyrsta mark íslenska kvennalandsliðsins í rúmlega 400 mínútur frá 2-0 sigri gegn Slóveníu í apríl. Eftir grátlegt tap gegn Frakklandi á þriðjudaginn komu Stelpurnar Okkar ákveðnar til leiks og var Fanndís búin að ógna marki Sviss rétt áður en markið kom. Það verður að hrósa þætti Dagnýjar Brynjarsdóttur í markinu en hún átti einfaldlega frábæra sendingu inn fyrir vörnina á Fanndísi sem kom á hlaupinu, hélt varnarmanninum frá sér og laumaði boltanum í fjærhornið framhjá Gaëlle Thalmann í marki Sviss. Var þetta fjórða mark Íslands á EM en Fanndís komst með þessu í flokk með Hólmfríði Magnúsdóttur, Margréti Láru Viðarsdóttur og Dagnýju Brynjarsdóttur yfir markaskorara Íslands á EM kvenna. Hægt er að fylgjast með gangi leiksins hér í beinni textalýsingu.
EM 2017 í Hollandi Tengdar fréttir Í beinni: Ísland - Sviss 1-1 | Stelpurnar verða að fá stig Ísland náði forystunni gegn Sviss en það dugði ekki til. Íslenska liðið er án stiga eftir tvo leiki og útlitið svart. 22. júlí 2017 18:00 Mest lesið Var hetjan framan af en stóð uppi sem skúrkurinn Fótbolti Stjarnan í vondum málum eftir tap í Írlandi Fótbolti Stúkan: „Sama hvað hann gerir ekki gefa honum gult spjald“ Íslenski boltinn Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Körfubolti Markalaust á Etihad Fótbolti Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals Handbolti Muna vel leikinn við Liverpool fyrir 60 árum Fótbolti Man City saknaði ekki þeirrar markahæstu og Arsenal tapaði í Svíþjóð Fótbolti Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Enski boltinn Sprungu úr hlátri þegar stóllinn hans Alberts gaf sig: „Ragnar Reykás er mættur“ Fótbolti Fleiri fréttir Stúkan: „Sama hvað hann gerir ekki gefa honum gult spjald“ Stjarnan í vondum málum eftir tap í Írlandi Var hetjan framan af en stóð uppi sem skúrkurinn Markalaust á Etihad Íslendingalið Vålerenga og Wolfsburg með misgóða sigra í Meistaradeildinni Man City saknaði ekki þeirrar markahæstu og Arsenal tapaði í Svíþjóð Keflavík í góðri stöðu Rómverjar búnir að finna eftirmann De Rossi Sú markahæsta ekki með vegna klaufalegra mistaka Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Amanda skoraði og er skrefi nær riðlakeppninni Ten Hag rólegur þrátt fyrir fullkomið kvöld Markafjöldi Haalands kemur Guardiola á óvart Kompany svarar fyrir sig: „Líkurnar mínar voru 0,000 eitthvað“ „Mér finnst að allar þessar krúsídúllur eigi að bíða“ Fór ekki til Atlético Madrid vegna afskipta mömmunnar Stuðningsmaður Liverpool lést fyrir leikinn gegn Milan Sjáðu öll mörkin og fáránlegan leikaraskap Rüdigers Salvatore Schillaci látinn Muna vel leikinn við Liverpool fyrir 60 árum Roma rekur De Rossi eftir aðeins fjóra leiki Sprungu úr hlátri þegar stóllinn hans Alberts gaf sig: „Ragnar Reykás er mættur“ Kane markahæsti Englendingurinn í mun færri leikjum en Rooney Afmælisbarnið Arne Slot segir jákvætt að Liverpool hafi lent undir Lið Stefáns skoraði úr sextán vítum Ellefu mörk skoruð í stórsigri Bayern München Miðverðirnir báðir með mark í sigri Liverpool Titilvörnin hefst á sigri í stórskemmtilegum leik Auðvelt á Old Trafford gegn C-deildarliðinu Þóra vonar að Tinna finni sér annað lið: „Kæmi mér á óvart ef það yrði ekki slegist um hana“ Sjá meira
Í beinni: Ísland - Sviss 1-1 | Stelpurnar verða að fá stig Ísland náði forystunni gegn Sviss en það dugði ekki til. Íslenska liðið er án stiga eftir tvo leiki og útlitið svart. 22. júlí 2017 18:00