Fagnaði tvisvar á vellinum og einu sinni upp á spítala Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. nóvember 2017 09:00 Ryan Colclough varð þarna faðir í annað skiptið. Mynd/Twitter/@DavidSharpe91
Ryan Colclough mun örugglega ekki gleyma þriðjudagskvöldinu 21. nóvember 2017 í bráð enda hafa ekki margir knattspyrnumenn átt eftirminnilegra kvöld en þessi 22 ára vængmaður Wigan. Ryan Colclough skoraði tvö mörk fyrir Wigan í 3-0 sigri á Doncaster Rovers. Seinna markið hans kom á 58. mínútu og því var nægur tími til að ná þrennunni. Colclough var hinsvegar skipt af velli þremur mínútum síðar en það var ekki fótboltinn sem réði því. Konan hans var nefnilega komin af stað í því að fæða annað barnið þeirra. Ryan Colclough frétti það í hálfleik að konan hefði misst vatnið og væri á leiðinni upp á spítala. Það var því ekkert annað í stöðunni en að gera út um leikinn og drífa sig upp á spítala. Ryan Colclough gerði það líka, leikurinn var í raun búinn þegar hann kom Wigan í 3-0, og hann kláraði sína þrennu kvöldsins með því að fá barnið sitt í fangið að lokinn fæðingu. Eins og sést hér fyrir neðan þá hafði Ryan Colclough engan tíma til að klæða sig úr keppnisbúningnum.Congrats to Ryan Colclough who scored a brace tonight in our win before being substituted to make it in time to see the birth of his son! pic.twitter.com/Efvjk9P3sw — David Sharpe (@DavidSharpe91) November 21, 2017 „Hann frétti það í hálfleik að konan væri komin af stað. Um leið og hann skoraði annað markið sitt þá tókum við hann útaf því hausinn hans var allt annar staðar. Við erum allir ólíkir. Sumir leikmenn hefðu ekki farið og væru enn í búningsklefanum núna,“ sagði Leam Richardson aðstoðarknattspyrnustjóri Wigan við BBC. Ryan Colclough var aðeins búinn að skora eitt mark í deildinni á tímabilinu og þrefaldaði því markaskorið sitt í gærkvöldi. Hitt markið hans kom á móti Peterborough í september.
Enski boltinn Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti NFL-stjarna á tíu börn og hefur eignast fjögur síðasta árið Sport Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Bruno sneri taflinu við gegn botnliðinu Liverpool hefur viðræður við Arne Slot Slapp við rautt þrátt fyrir fólskubrot: „Einhver þarf að útskýra þetta fyrir mér“ Tveir nítján ára handteknir fyrir nauðgun Fyllir Slot upp í tómarúmið sem Klopp skilur eftir sig? Segir sína menn ekki verðskulda Evrópusæti Segir sitt hlutverk að fá leikmenn til að trúa á verkefnið Skytturnar tylltu sér á toppinn með stæl Skorar tíðast allra en missir enn af leikjum Liverpool Segir viðbrögð fjölmiðla til skammar Højlund kvartaði yfir því að Fernandes gæfi ekki nógu oft á sig Heldur tryggð við Aston Villa þrátt fyrir áhuga annarra liða „Sýna að þetta sé Chelsea FC en ekki Cole Palmer FC“ Fannst Pogba týna sjálfum sér eftir að hann varð heimsmeistari Segir að Ten Hag sé búinn að vera Forest vill hljóðupptöku dómaraherbergins frá leiknum gegn Everton Var sagður taka við Liverpool en hefur rætt við West Ham „Kem því ekki í orð hversu léleg frammistaðan var“ Hjólaði alla leið frá Mongólíu til að sjá United spila Antony gagnrýndur fyrir fagnið „Úrslitin kostuðu Ten Hag starfið“ Ratcliffe hljóp maraþon og dreif sig svo á Wembley Ásaka dómara um óheilindi og hlutdrægni Sjá meira