Fagmennskan í fyrirrúmi

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 20. desember 2011 16:00
Gullvagninn með Björgvini Halldórssyni.
Gullvagninn með Björgvini Halldórssyni.
Trausti Júlíusson skrifar:
Tónlist. Gullvagninn. Björgvin Halldórsson.

Árið 2005 sendi Björgvin Halldórsson frá sér þriggja diska safnpakka, Ár og öld, sem var það flottasta sem þá hafði verið gefið út hérlendis í safnplötubransanum. Síðan hefur íslenskum plötuútgefendum farið mikið fram í því að setja saman viðhafnarútgáfur og yfirlitspakka þannig að nú þegar Björgvin fagnar 60 ára afmælinu með nýjum plötupakka þá hafa viðmiðin hækkað og kröfurnar aukist.

Það er hægt að segja það strax að karlinn er ekkert að klikka á þessu frekar en fyrri daginn. Gullvagninn er sérstaklega flottur gripur. Þetta eru fimm diskar og bók með greinargóðum upplýsingum, flottu myndefni og texta um Björgvin eftir Jónatan Garðarsson. Allt er þetta bundið inn í harðspjaldabók sem svo er rennt inn í veglega öskju. Í einu orði sagt glæsilegt.

Það eru fjórir geisladiskar með tónlist í pakkanum, alls 88 lög. Þeim er skipt upp eftir efni og heita Söngvarinn, Dúettar, Höfundurinn og Hljómsveitir. Auk þess er DVD-diskur með afmælistónleikum stjörnunnar í Háskólabíói í vor og viðtalsþættinum Bolur inn við bein, sem RÚV gerði í tilefni af sextugsafmælinu, en þar talaði Þórhallur Gunnarsson við Björgvin og rifjað var upp gamalt efni.

Björgvin er búinn að vera „mainstream" mjög lengi sem þýðir að það er fullt af ofurvinsælum lögum í þessum pakka – fullt af sígildu poppi, en kannski líka lög sem einhverjir eru búnir að fá sig fullsadda af. Inn á milli leynist samt minna þekkt efni. Þemaskiptingin á plötunum fjórum er fínt mál og dregur fram mismunandi hliðar á Björgvini. Það sem kom mér einna mest á óvart er hvað hann hefur sjálfur samið mikið af sínum bestu lögum.


Björgvin Halldórsson.
Björgvin Halldórsson.
Björgvin leggur alltaf mikinn metnað í það sem hann gerir og það heyrist vel hér. Það ræðst svo af smekk hvers og eins hvaða skeið eða tónlistarverkefni eru í mestu uppáhaldi. Er það Brimkló? Vísnaplöturnar? HLH? Íslandslög? Lónlí Blú Bojs? Eða dúettaplöturnar? Eða kannski Ævintýri? Hver dæmir fyrir sig. Það er gæðatónlist á öllum plötunum fjórum, en Dúettaplatan höfðar samt minnst til mín.

Það er líka mikill fengur í DVD-disknum. Afmælistónleikarnir frá því í vor tókust vel og viðtalsþátturinn við Þórhall er stórskemmtilegur og fullur af gömlum myndskeiðum.

Á heildina litið er Gullvagninn sérstaklega glæsilegur safnpakki. Einn af þeim flottustu sem hafa komið út hér á landi.

Niðurstaða: Bo vandar til verka eins og fyrri daginn.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 24. maí. 2012 10:30

Súrrealísk sumargjöf

Stórfín frumraun Tilbury, stappfull af grípandi popplögum og forvitnilegum textum. Tónlist...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Gagnrýni 27. mar. 2012 12:00

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að k...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Fagmennskan í fyrirrúmi