Innlent

Færð og veður á landinu: Yfirlit Vegagerðarinnar

Mynd úr safni
Óveður er á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og á sunnanverðu Snæfellsnesi en stórhríð í ofanverðum Borgarfirði og í Dölum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni sem segir ennfremur að óveður sé undir Eyjafjöllum, við Ingólfsfjall, á Hellisheiði og í Þrengslum.

Það er fært milli Tálknafjarðar og Patreksfjarðar en annarsstaðar á Vestfjörðum er beðið með mokstur vegna veðurs.

Á Norðurlandi má heita að allsstaðar sé stórhríð og ekkert ferðaveður. Þar er beðið átekta með mokstur.

Stórrhríð á Fjarðarheiði



Á Austurlandi er óveður á Vopnafjarðarheiði og stórhríð á Fjarðarheiði. Það er fært yfir Fagradal og þæfingsfærð á Oddsskarði en þarna er þó mikill skafrenningur.

Á Suðausturlandi eru vegir auðir vestan Hafnar en það er óveður við Lómagnúp og á Mýrdalssandi.

Skafrenningur víða

Í tilkynningu Vegagerðarinnar eru ennfremur ábendingar frá veðurfræðingi sem segir að veðrið gangi lítið niður, að minnsta kosti fyrir hádegi.

Um miðjan daginn fer að draga úr ofanhríðinni um miðjan daginn á Vestfjörðum, í Dölum og vestantil á Norðurlandi, en áfram þó hvasst og skafrenningur.

Meira og minna ofanhríð í dag og afleitt skyggni frá Siglufirði að telja og austur á firði.

Snarpar vindhviður á Kjalarnesi

Allra austast hefur náð að hlána í bili á láglendi, en frystir fljótlega aftur með snjókomu.

Snarpar vindhviður verða á Kjalarnesi fram á kvöld og allt að 45 m/s fram yfir hádegi.

Sama má segja um sunnanvert Snæfellsnes. Hviður verða allt að 45 m/s undir Eyjafjöllum og við Lómagnúp. Suðaustanlands hefur verður hins vegar að mestu gengið niður.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×