Innlent

Fær skaðabætur eftir boltaleik í hálku

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Dómurinn fellst á það að starfsmenn skólans hafi ekki sinnt skyldu sinni í aðdraganda slyssins nægilega vel.
Dómurinn fellst á það að starfsmenn skólans hafi ekki sinnt skyldu sinni í aðdraganda slyssins nægilega vel. Vísir/Valli
Nemandi sem rann til í hálku á skólalóð og hlaut við fallið opið beinbrot á handlegg fær greiddar skaðabætur vegna tjónsins sem hann varð fyrir. Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Atvikið átti sér stað í desember 2009. Nemandinn var þá á leið út á körfuboltavöll með vini sínum í hádegisfrímínútum. Hálka var úti og runnu þeir báðir til með þeim afleiðingum að stefnandi slasaðist illa.

Skólinn þar sem slysið varð var tryggður hjá VÍS og var tryggingarfélaginu stefnt samkvæmt lögum um vátryggingarsamninga.

Í dómi Héraðsdóms segir að forráðamönnum skólalóða beri skylda til að koma í veg fyrir slysahættu sem skapast getur á skólalóðum, til dæmis vegna hálku.

Dómurinn fellst á það að starfsmenn skólans hafi ekki sinnt skyldu sinni í aðdraganda slyssins nægilega vel og er það metið til gáleysis. Það gerir tryggingafélagið skaðabótaskylt samkvæmt skaðabótalögum þar sem um saknæmt athæfi er að ræða.

VÍS var því dæmt í héraði til að greiða bætur úr vátryggingu skólans og bæta stefnanda tjónið að tveimur þriðju hluta. Stefnandi ber sjálfur einn þriðja hluta tjónsins þar sem hann gætti ekki varúðar og fór út á svæðið þrátt fyrir að gera sér grein fyrir að svæðið væri mjög hált. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×