Fótbolti

Fá tuttugu þúsund miða

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ronaldo á ferðinni í síðustu viku gegn City.
Ronaldo á ferðinni í síðustu viku gegn City. vísir/getty
Félögin Real Madrid og Atletico Madrid fá tuttugu þúsund miða á hvert félag fyrir úrslitaleikinn í Meistaradeild Evrópu sem fram fer 28. maí í Mílanóborg.

Úrslitaleikurinn fer fram á San Siro í Milan og verða alls 72.000 miðar í boði á leikinn, þrátt fyrir að völlurinn taki 80.000 manns en framboðið á miðunum helgast af hertum öryggisráðstöfunum.

Þessi lið mættust einnig í úrslitaleiknum árið 2014 í Lissabon og þá hafði Real Madrid betur eftir framlengdan leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×