Íslenski boltinn

Eyjólfur búinn að framlengja við Stjörnuna

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eyjólfur í leik með Stjörnunni síðasta sumar.
Eyjólfur í leik með Stjörnunni síðasta sumar. vísir/ernir
Stjarnan tilkynnti í dag að Eyjólfur Héðinsson hefði skrifaði undir nýjan samning við félagið.

Nýi samningurinn er út leiktíðian 2018 að minnsta kosti segir í tilkynningu Stjörnunnar. Mikil ánægja er innan herbúðar Stjörnunnar með Eyjólf innan sem utan vallar.

Eftir að hafa verið lengi í meiðslum í atvinnumennskunni ákvað Eyjólfur að koma heim fyrir síðasta sumar og spila fyrir Garðbæinga.

Hann spilaði sextán leiki fyrir silfurlið Stjörnunnar í Pepsi-deildinni síðasta sumar og skoraði eitt mark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×