Fótbolti

Evrópuævintýri Stjörnumanna endaði á stórum skelli á San Siro

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mateo Kovacic skoraði þrennu fyrir Inter í kvöld og hér fagnar hann öðru marki sínu.
Mateo Kovacic skoraði þrennu fyrir Inter í kvöld og hér fagnar hann öðru marki sínu. Vísir/AFP
Stjarnan er úr leik í Evrópudeildinni eftir sex marka stórtap í seinni leiknum á móti ítalska liðinu Internazionale í umspili um laust sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Ítalirnir unnu samanlagt 9-0.

Þetta var áttundi Evrópuleikur Stjörnumanna í ár og þetta sumar hefur verið stórt og mikið ævintýri. Garðbæingar áttu hinsvegar litla möguleika á móti einum af risanum í ítalska boltanum.

Hinn tvítugi Króati Mateo Kovacic skoraði þrennu á fyrstu 52 mínútunum og Mauro Icardi skoraði tvö eftir að hafa komið inná sem varamaður.

Stjörnumenn áttu auðvitað ekki mikla möguleika á því að komast áfram eftir 3-0 tap í fyrri leiknum á Laugardalsvellinum og þetta var erfitt kvöld fyrir Garðbæinga á San Siro leikvanginum í Mílanó í kvöld.

Internazionale var 2-0 yfir í hálfleik eftir tvö mörk Króatans Mateo Kovacic með fimm mínútna millibili en mörkin hefðu getað orðið miklu fleiri á fyrstu 45 mínútunum.

Ítalska liðið bætti úr því í seinni hálfleiknum og var komið í 3-0 eftir aðeins eina mínútu. Það mark gerði Pablo Osvaldo með flottum skalla en hann var stórhættulegur allan fyrri hálfleikinn.

Mateo Kovacic innsiglaði síðan þrennu sína á 51. mínútu þegar hann kom Inter í 4-0 og var tekinn af velli strax í kjölfarið.

Varamaðurinn Mauro Icardi skoraði fimmta markið á 69. mínútu og skömmu síðar þurfti Garðar Jóhannsson að haltra af velli meiddur. Garðar var nýkominn inná og Stjörnuliðið var búið með allar skiptingarnar sínar. Stjarnan þurfti því að vera manni færri síðustu tuttugu mínúturnar.

Mauro Icardi skoraði í fyrri leiknum og bætti við sínu öðru marki í kvöld á 80. mínútu. Hann fékk tækifæri til að skora þrennu en Ingvar Jónsson varði tvívegis mjög vel frá honum.








Tengdar fréttir

Góð stemming fyrir leik Stjörnunnar og Inter | Myndir

Þrátt fyrir 0-3 tap gegn Inter í gær var frábær stemming hjá stuðningsmönnum Stjörnunnar á Ölver fyrir leik, í skrúðgöngunni á leikinn og á leiknum sjálfum. Vísir hefur tekið saman skemmtilega myndsyrpu frá kvöldinu.

Bjarni Ben fékk mynd af sér með Fabio Cannavaro

Bjarni Benediktsson hitti Fabio Cannavaro, fyrrum fyrirliða ítalska landsliðsins á kaffihúsi í Mílanó í dag en Bjarni er mættur til Mílanó til að fylgjast með seinni leik Inter og Stjörnunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×