Skoðun

Evrópuaðild fyrir fólkið í landinu

Mörður Árnason skrifar
Öllu talinu um aðildarsamningana og framtíðarstefnuna í sambandi við Evrópusambandið hættir til að verða nokkuð fjarlægt og háfleygt, fyrir nú utan að þátttakendur leyfa sér óvenjumikið rugl og nöldur, jafnvel á íslenskan nútímakvarða. Jájá, það þarf að finna leið út úr gjaldeyrishöftunum, og enginn hefur bent á neina aðra í raun og veru en upptöku evru. Jájá, það eru vandamál kringum fullveldisdeilingu, bæði í EES og ESB, og Íslendingar mega ekki rasa um ráð fram. Sjávarútvegsmálin, landbúnaðurinn, byggðirnar, fjármálamarkaðirnir o.s.frv. o.s.frv. En hvað kemur þetta venjulegu fólki við í daglegu brauðstriti og amstri – sem eftir Hrun er alvarlegt mál fyrir hver einustu mánaðamót á fjölmörgum heimilum?

Margt er auðvitað óljóst enn þá um stöðuna eftir inngöngu okkar í Evrópusambandið ef af verður. Þess vegna erum við að semja. Ýmislegt af kostum og göllum við aðild kemur ekki í ljós fyrr en á líður. Það er reynsla annarra þjóða sem inn eru gengnar, svo sem Svía og Finna, Eystrasaltsþjóðanna, nýfrjálsu ríkjanna í Mið- og Austur-Evrópu.

Margt er líka nokkurn veginn ljóst, og varðar ekki síst hag fjölskyldnanna, almennings í landinu. Með evrunni minnkar allur kostnaður í viðskiptum okkar við evrulöndin – vöruverð fer niður. Vextir hafa verið hér alltof háir fyrir bæði fólk og fyrirtæki. Þeir lækka með inngöngu og evru, og líklega strax með tengingu krónunnar við evru. Innganga og evra mundi slá á verðbólgu með sífelldum hækkunum verðlags og launa. Verðtryggingin hverfur svo að segja með evrunni, enda er verðtryggingin hækja sem hin veika króna notar til að halda sér uppréttri.

Það rennur ekki upp paradís á jörðu daginn sem við göngum í Evrópusambandið. Sem fyrr eru Íslendingar sinnar eigin gæfu smiðir. Fyrir venjulegt fólk verður hins vegar auðveldara að lifa, einfaldara að skipuleggja, meira öryggi við rekstur heimilisins.

Þess vegna er svo áríðandi að klára samninginn við Evrópusambandið sem fyrst og leyfa þjóðinni að taka til hans afstöðu. Fyrir okkur öll, fyrir fólkið í landinu.




Skoðun

Sjá meira


×